Guðbjörg Arnardóttir

Friday, December 14, 2007

Fasta hvað....

Aðventan er jólafasta, bara að nefna það. Þá ætti fólk að minnka við sig af veraldlegum gæðum. Einmitt ekki það sem er að gerast í kringum mig. Ég er stöðugt í veislum, persónuleg afmæli. Ég er stöðugt á aðventusamkomum hjá hinum eða þessum og gúmmulaði, gúmmulaði alls staðar. Ég hef ekki stjórn á mér ef eitthvað gott er að borða, mun líklega aldrei flotinu neita. Ég hef ekki á móti farið á þrektækið mitt í kjallarnum og er við það að springa.
Annars er ég þakklát þessu roku þó auðvitað sé slæmt ef hlutir eru að skemmast. Ég fór reyndar í veislu áðan en nú er ég bara heima að taka til og ætla í jólakortin á eftir. Svo mér verður eitthvað úr verki í rokinu.

2 Comments:

  • At 8:06 AM, Anonymous Anonymous said…

    Dugleg ertu! Þrektækið fer ekkert mín kæra, það verður þarna ennþá eftir áramót þegar freistingunum fækkar. Ég er að læra að lifa í núinu, það er soldið skemmtilegt :)

     
  • At 2:04 PM, Blogger Gunnur said…

    Takk fyrir fallegt jólakort Gugga mín. Frábær myndin af krökkunum!
    jólaknús frá DK :-)

     

Post a Comment

<< Home