3 ára

Helgin var frábær. Afi Óskar gisti hjá okkur á föstudagsnótt en Freyr fékk að gista á Selfossi hjá Patreki Thor. Á laugardag var afmæli hjá Sindra í Hveragerði. Seinna um daginn komu amma og afi og við gerðum laufabrauð, mikið gaman. Þau gistu og vekur það alltaf jafn miklu lukku þegar einhver vill gista. Á sunnudag átti heimasætan 3 ára afmæli og telur hún sig nú nánst 16 ára og ætlaði vart að þora að sofna með dudduna sína í kvöld því hún var orðin 3 ára. Pakkar voru opnaðir í morgun við mikinn fögnuð. Við fórum eftir messu í Haukadal, náð í eitt jólatré eða svo. Fórum síðan á jólahlaðborð á Geysi, alveg æði, pöntuðum á leiðinni út fyrir okkur aftur á næsta ári, mæli fullkomlega með þessari fjölskylduskemmtun. Jæja smá bjótt á morgun, best að sofna og safna kröftum.


1 Comments:
At 9:47 AM,
Anonymous said…
Það verður gaman hjá okkur á næsta ári í jólahlaðborði ;-)
Post a Comment
<< Home