Guðbjörg Arnardóttir

Tuesday, December 01, 2009


Wednesday, January 07, 2009

Janúar 2009

Gleðilegt ár öll og takk fyrir gamla árið og allt gamalt og gott.
Mér finnst eins og það hafi eiginlega verið í gær sem ég og börnin hlupum glaðbeitt út í bílskúr og bárum inn kassana með jólaskrautinu, settum diskinn um Völdund, smið jólasveinanna í tækið og skreyttum allt húsið. Ég er alltaf svolítið dramatískt og þess vegna er það tregablandin athöfn að taka niður jólaskrautið. En ég ætla að vinda mér í verkið en er að hugsa um að láta útiljósin hvítu loga eitthvað áfram eins og hvatt hefur verið til víða.
Fariði vel með ykkur í upphafi árs!

Thursday, December 11, 2008

Annasöm vika

Það er í nógu að snúast, tala á amk. einni samkomu á hverjum degi. Það er bara gaman, heyrði í fyrra gátuna: ,,Hvað er sameiginlegt með prestum og hrútum? Það er mest að gera hjá þeim í desember." Við hleypum til í næstu viku, það eru fyrstu vorverkin :-) Svo koma sveinarnir í kvöld, ég spurði Ásrúnu að því í gær hvort hún héldi að þeir rötuðu í Odda. Jú, hún var viss um það því þeir væru með vísakort sem vísaði þeim leiðina. En ekki hvað, ég bara spyr.
Jæja, fariði vel með ykkur í rokinu framundan, vona að ég þurfi ekki að aflýsa aðventukvöldi í Þykkvabæjarkirkju.

Wednesday, December 03, 2008

Tíminn, tíminn

Helgin framundan er búin að vera fyrirsögn hér lengi. Hvaða helgi ? Hún er löngu löngu liðin.
Hér er allt að komast á fullt skrið og búið að vera í nokkurn tíma. Við héldum upp á 4 ára afmæli Ásrúnar á sunnudaginn við mikinn fögnuð og gleði prinsessunnar. Hún ákvað einnig við þessi tímamót að hætta með snuðið sitt. Ég kveið því mikið og finn enn til með henni en hún minnist ekki einu sinni á snudduna, vonandi að þetta haldist áfram þannig. Jólakortaskrifin eru komin af stað, ég hef gaman af því að skrifa þau. Á laugardaginn frumsýnir Barnakór Odda- og Þykkvabæjakirkna aðventuleikrit, ég hlakka ótrúlega til, þau verða rosalega flott er ég viss um. Nú svo er að skella sér í fjöldaframleiðslu á hugvekjum, mér finnst þetta frábært tími.
Hafið það gott við kertaljósin og eigiði notalega aðventu.

Friday, November 14, 2008

Helgin framundan

Það er annasöm helgi framundan en þó ekki í vinnu. Afmælishrynan er hafin sem er auðvitað gaman. Á morgun erum við boðin í þrjú afmæli auk þess að kirkjukórinn fer saman út að borða. Það er ljóst að ekki er hægt að mæta á alla viðburði, svona er þetta bara. Ásrún var veik heima í gær en er mun hressari í dag. Vona að helgi ykkar verði fín.
Læt hér fylgja smá slóð á smá pistil sem ég skrifaði:
http://tru.is/pistlar/2008/11/thin-bidur-ein-beidni-um-vin

Wednesday, November 12, 2008

Heimabyggð

Það gengur þokkalega með hana Erlu kisu, kisa sem heitir Erla en er kölluð Sigrún, eða svo segir Ásrún. Hún reyndar heldur mér við efnið því hún var ekki kassavön þegar hún kom og af einhverri ástæðu finns henni rúmin okkar vera heppilegasti staðurinn fyrir úrganginn, svo ég þvæ og þvæ rúmföt upp á hvern dag. Þetta vonandi kemur allt. Ég hef undanfarið verið að viða að mér jólagjöfum og er langt komin með þetta, lofaði sjálfri mér að vera tímanlega að öllu svona. Það er reyndar svo að mörg afmæli koma inn í þennan sama tíma svo það er að mörgu að hyggja. Fór á mánudaginn í glænýja risa leikfangaverslun í Reykjavík, þegar ég gekk þar um féllust mér alveg hendur, úrvalið var þvílíkt og reyndar dæsti ég einnig yfir verðinu, það er svo sem það sem allir gera þessa dagana. Í þessari annars forláta verslun sá ég Baby-Born bílstól sem kostaði tæpar tíuþúsund krónur, ég svitnaði bara og fór tómhent út. Í dag fór ég í eina af mínum uppáhaldsbúðum, Mosfell á Hellu, þar fæst allt. Einmitt var þar einnig nákvæmlega eins Baby-Born bílstóll nema á honum var verðmiðinn 3.100.- Ég mun hér eftir ekki kaupa neina jólagjöf nema það sem keypt í Rangárþingi eða næsta bæ, Selfossi. Styrkum heimabyggðir!

Sunday, November 09, 2008

Humm

Er ég hætt, eða er ég ekki hætt? Það er þessi spurning!
Það er eins og mig skorti andgift í þetta blogg ergo facebook lamar blogg.
Átti annars mjög ljúfa helgi. Á laugardagsmorgun var barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Safnaðarheimilinu á Hellu, mjög vel mætt, þetta eru best sóttu guðsþjónustur í prestakalli, hvað segir það mér? Beið hinn partinn úr laugardeginum eftir að vera kölluð út á stórslysaæfingu en það gerðist ekki, líklega hafa aðrir prestar gengið í málið. Elduðum dásemar nautarkjöt á laugardagskvöld á Raqulette grilli og svo mikil var stemningin að Freyr harmaði það hálfan matartímann að engvir væru matargestirnir, bara fjölskyldan.
Í dag var guðsþjónusta á Lundi fyrr part dags og bænar- og kyrrðarguðsþjónusta í Oddakirkju núna í kvöld. Mér fannst hún virkilega notaleg, vona að fleirum hafi fundist það.
Í dag bættist í hóp fjölskyldunnar, hún Erla, lítill kettlingur, alveg voðalega sæt, já, ég veit ég trúi varla sjálf að ég sé að segja þetta, en svona er það nú samt. Þannig að nú eiga börnin sína kisuna hvort og í þessum skrifðu orðum kúrir Bóbó hjá Frey og Erla hjá Ásrúnu.
Jæja, ég er að hugsa um að horfa á Dagvaktina sem ég tók upp á meðan guðsþjónustan fór fram, já ég veit þetta er kannski ekki heppilagsta að keppa við.
Góða nótt og Guð geymi ykkur, gleðilega nýja viku.