Guðbjörg Arnardóttir

Friday, November 23, 2007

Hitt og þetta

Litla frænka hún Heiðbjört Guðmundsdóttir dafnar vel. Við fjölskyldan kíktum til hennar á miðvikudaginn, stálust til þess þrátt fyrir viðvarnir um smit og sýkla. Hún er algjörlega sætust, töluverð svefnpurka. Hlökkum til að sjá hana fljótlega aftur. Kíktum á jólaljósin á Selfossi í gær og erum að safna að okkur hinu og þessu fyrir jólin. Er einnig að gera tilfæringar heima á hinu og þessu og er heima núna í tiltekt, veitir ekki af. Fögnum í kvöld 100 ára afmælis skógræktarlaga og á morgun er afmæli, á sunnudag stendur til að baka piparkökur og jafnvel skreyta, en segið ekki nokkrum manni frá því.
Góða helgi.

2 Comments:

  • At 1:44 AM, Anonymous Anonymous said…

    Skreyta? Það er enn nóvember!!
    Vonast til að sjá þig í byrjun aðventu,
    kv.
    Sg

     
  • At 2:41 AM, Anonymous Anonymous said…

    Til hamingju með frænkuna elskan ;o) Kv. Kassa

     

Post a Comment

<< Home