Heimabyggð
Það gengur þokkalega með hana Erlu kisu, kisa sem heitir Erla en er kölluð Sigrún, eða svo segir Ásrún. Hún reyndar heldur mér við efnið því hún var ekki kassavön þegar hún kom og af einhverri ástæðu finns henni rúmin okkar vera heppilegasti staðurinn fyrir úrganginn, svo ég þvæ og þvæ rúmföt upp á hvern dag. Þetta vonandi kemur allt. Ég hef undanfarið verið að viða að mér jólagjöfum og er langt komin með þetta, lofaði sjálfri mér að vera tímanlega að öllu svona. Það er reyndar svo að mörg afmæli koma inn í þennan sama tíma svo það er að mörgu að hyggja. Fór á mánudaginn í glænýja risa leikfangaverslun í Reykjavík, þegar ég gekk þar um féllust mér alveg hendur, úrvalið var þvílíkt og reyndar dæsti ég einnig yfir verðinu, það er svo sem það sem allir gera þessa dagana. Í þessari annars forláta verslun sá ég Baby-Born bílstól sem kostaði tæpar tíuþúsund krónur, ég svitnaði bara og fór tómhent út. Í dag fór ég í eina af mínum uppáhaldsbúðum, Mosfell á Hellu, þar fæst allt. Einmitt var þar einnig nákvæmlega eins Baby-Born bílstóll nema á honum var verðmiðinn 3.100.- Ég mun hér eftir ekki kaupa neina jólagjöf nema það sem keypt í Rangárþingi eða næsta bæ, Selfossi. Styrkum heimabyggðir!


0 Comments:
Post a Comment
<< Home