Er ég hætt, eða er ég ekki hætt? Það er þessi spurning!
Það er eins og mig skorti andgift í þetta blogg ergo facebook lamar blogg.
Átti annars mjög ljúfa helgi. Á laugardagsmorgun var barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Safnaðarheimilinu á Hellu, mjög vel mætt, þetta eru best sóttu guðsþjónustur í prestakalli, hvað segir það mér? Beið hinn partinn úr laugardeginum eftir að vera kölluð út á stórslysaæfingu en það gerðist ekki, líklega hafa aðrir prestar gengið í málið. Elduðum dásemar nautarkjöt á laugardagskvöld á Raqulette grilli og svo mikil var stemningin að Freyr harmaði það hálfan matartímann að engvir væru matargestirnir, bara fjölskyldan.
Í dag var guðsþjónusta á Lundi fyrr part dags og bænar- og kyrrðarguðsþjónusta í Oddakirkju núna í kvöld. Mér fannst hún virkilega notaleg, vona að fleirum hafi fundist það.
Í dag bættist í hóp fjölskyldunnar, hún Erla, lítill kettlingur, alveg voðalega sæt, já, ég veit ég trúi varla sjálf að ég sé að segja þetta, en svona er það nú samt. Þannig að nú eiga börnin sína kisuna hvort og í þessum skrifðu orðum kúrir Bóbó hjá Frey og Erla hjá Ásrúnu.
Jæja, ég er að hugsa um að horfa á Dagvaktina sem ég tók upp á meðan guðsþjónustan fór fram, já ég veit þetta er kannski ekki heppilagsta að keppa við.
Góða nótt og Guð geymi ykkur, gleðilega nýja viku.