Ekki alveg hætt
Það fer lítið fyrir færslum hér á síðunni þessa dagana. Jæja, allt það besta að frétta, skellti mér á námskeið í línudansi í gærkvöldi. Ég hef nú aldrei verið þekkt fyrir afrek á dansgólfinu og fremur klunnaleg en hitt. Hef t.d. aldrei getað stundað þolfimi af viti því mér ómögulegt að halda takti og fylgja sporunum. Það er svo sem ekki í frásögur færandi en ég er meðlimur í fjórum kvenfélögum og tvö af þeim tóku sig saman um að halda þetta námskeið og að sjálfsögðu get ég ekki verið þekkt fyrir annað en kíkja á málið. Þetta var hin fínasta skemmtun og gaman að gleyma sér, upplifa það í klukkutíma að stærstu áhyggjurnar voru að halda takti og stíga ekki á tær. Ég fór nú eitthvað út af sporinu en það má þegar maður er að læra að dansa. Jæja, fer því dansandi inn í helgina og hlakka gríðarlega til seinna í dag þegar ég fer í Riverside Spa á Selfossi með mömmu, Elfu systir og Lindu Björk frænku. Góðar stundir.


1 Comments:
At 1:35 AM,
Anonymous said…
Gvöööðbjörg! Nú er mér allri lokið. Fjögur kvenfélög og línudansnámskeið? Tökum þetta fyrir eftir viku og fáum komment;-)
Hafðu það gott um helgina,
Sigga
Post a Comment
<< Home