Guðbjörg Arnardóttir

Friday, October 17, 2008

Ekki alveg hætt

Það fer lítið fyrir færslum hér á síðunni þessa dagana. Jæja, allt það besta að frétta, skellti mér á námskeið í línudansi í gærkvöldi. Ég hef nú aldrei verið þekkt fyrir afrek á dansgólfinu og fremur klunnaleg en hitt. Hef t.d. aldrei getað stundað þolfimi af viti því mér ómögulegt að halda takti og fylgja sporunum. Það er svo sem ekki í frásögur færandi en ég er meðlimur í fjórum kvenfélögum og tvö af þeim tóku sig saman um að halda þetta námskeið og að sjálfsögðu get ég ekki verið þekkt fyrir annað en kíkja á málið. Þetta var hin fínasta skemmtun og gaman að gleyma sér, upplifa það í klukkutíma að stærstu áhyggjurnar voru að halda takti og stíga ekki á tær. Ég fór nú eitthvað út af sporinu en það má þegar maður er að læra að dansa. Jæja, fer því dansandi inn í helgina og hlakka gríðarlega til seinna í dag þegar ég fer í Riverside Spa á Selfossi með mömmu, Elfu systir og Lindu Björk frænku. Góðar stundir.

Saturday, October 04, 2008

80 ára afmælisveisla

Var í gærkvöldi í 80 ára afmælisveislu hjá SSK, Sambandi sunnlenskra kvenna. Fékk þann heiður að stýra veislunni og var það voða gaman enda afmælisbarnið í fínu formi. Það var vel mætt og gátu konur og menn um stund gleymt því sem er á allra vörum. Ég vil nú helst ekki vera að tala meira um það enda nóg samt. Ég vil hins vegar velta upp því ábyrgðaleysi sem fréttamenn virðast komast upp með. Eitt er að upplýsa um það sem er í gangi annað er að lepja upp það allra svartasta sem getur komið upp í stöðunni og ala á hræðslu meðal fólks og NB barna. Þegar Ásrún spyr, ekki orðin 4 ára, mamma hvernig geta búðir farið á hausinn og Freyr spyr með áhyggjutón af hverju allir eru að tala um evruna og dollarann svona peninga endalaust.
Jæja, fer nú í Kirkjuskólann, barna- og fjölskylduguðsþjónustu á Hellu þar verður talað um þegar Jesús mettaði fimm þúsund með örlitlu brauði og nokkrum fiskum svo rýni ég í fjársjóðskistuna okkar og þar finnum við minnisverið : ,,Hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera," svo minni ég þau á að hvað er alvuru fjársjóður, þau, við, fjölskyldan, vinirnir, það að við öll stöndum saman er fjársjóður og Guð elskar mig og þig. Góðar stundir