Hví eruð þið áhyggjufull?
Það eru ótal margir hlutir í heiminum sem hægt er að hafa áhyggjur yfir, stórir sem smáir. Þessa daga er ég haldin ákvarðanakvíða og ég get ekki gert upp hug minn. Hversu stórt haldiði að þetta málefni sé? Á ég að fá mér stöð 2 eða ekki? Freyr leggur hart að því að við verðum áskrifendur og nefnir þessar óskir oft við ömmu sína og ætlast til að hún leggi málefninu lið með því að tíunda kosti þess að geta horft að stöðina óruglaða. Mamma slippi þá líklega við stressið sem fylgir því að taka upp Dagvaktina fyrir okkur þegar hún hefur göngu sína. Ég fæ ekki samþykki húsbóndans, hann spyrnir hart við fótum. Hann ólst upp án þess að hafa stöð 2 og telur það líklega hafa haft grundvallandi áhrif á allt hans líf í dag. Ég þekki líka fólk sem ólst upp án þess að hafa sjónvarp að við nefnum nú ekki sjónvarpsleysið á fimmtudögum. Líklega horfir hann þó í aurinn sem óneitanlega hverfur með áskriftinni. Ásrún hefur ekki skoðun á málinu en ég veit að hún hefði ekkert á móti því að hitta Dóru og Sollu stirðu reglulega á skjánum. Eina stundina finnst mér ég vera að brjóta eitthvert prinsipp með að fá mér stöð 2 því við höfum komst ágætlega af án hennar og ég óttast aukið sjónvarpsáhorf í stað bókalesturs sem er allt of lítill fyrir. Hina stundina finnst mér áðdáunarverð sú framleiðsta á íslensku sjónvarpsefni sem unnin er fyrir stöð 2, að mér virðist mun meira en í hinu ríkisstyrkta menningarstjónvarpi. Þar finnst mér Rás 1 sinna ein því góða hlutverki. Já þær eru stórar og miklar ákvarðanirnar sem suma daga þarf að taka :-)


1 Comments:
At 3:06 PM,
Anonymous said…
Þetta er greinilega mál málanna. Ég lét undan og sé ekkert smá eftir því, vegna þess að við horfum ekki mikið á sjónvarp. Dagvaktin verður því afar dýr afþreying á þessu heimili. Kemst ekki suður á fimmtudag, því miður.
Kv.
Sg
Post a Comment
<< Home