Hef alveg vanrækt þessa síðu, ákvað að skella mér í heim fésbókarinnar og sé svo sem ekkert eftir því, læt þetta ekki taka of mikið af tíma mínum en gaman að sjá kunnugleg andlit. Svo ég ræði nú framhald síðustu færslu þá gerðist ég virðulegur áskrifandi umræddrar stöðvar við mikinn fögnuð Freys sem taldi mig vera bestu mömmu í öllum heiminum en pabbi hans er enn að jafna sig. Fyrst sást ekkert svo við þurftum að útvega okkur nýtt loftnet og þá var gott að vera með réttu samböndin því við komust ekki í búð á opnunartíma. Jæja, nú kemur þetta betur út en er þó ekki fullkomið og eins gott að þetta virki 21. þessa mánaðar :-)
Annars hefur haustið minnt hressilega á sig þessa dagana og það kemur svo sem ekkert á óvart að það haustar í ár eins og önnur. Ég reyni nú að láta veðrið ekki pirra mig en er smá svekkt vegna veðurspárinnar á laugardaginn í réttunum en það þýðir þó bara að súpan verður þeim mun betra þegar heim verður komið. Áhugasamir velkomnir í réttir og súpu.

1 Comments:
At 4:03 AM,
Anonymous said…
Reyndi að hringja í þig í gær...! Betra er seint en aldrei, ekki satt?! annars erum við ennþá símalaus heima en fengum sjónvarp og internet núna í vikunni. Þvílík hamingja að geta séð fréttir svo ég tali nú ekki um íslenskt barnaefni! Ég reyni að ná á þig aftur við gott tækifæri. Spurning um að smella í einn hitting!
Knús í kotið, Gunnur
Post a Comment
<< Home