Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, September 04, 2008

Daglegt brauð

Þá er fríinu lokið og eðlilegt líf tekið við á ný. Þetta var frábært frí í alla staði, við komum hvíld og brosandi hringinn heim á ný. Krakkarni áttu mikið góðar stundir við leik og best finnst mér alltaf við fríin er að vera öll saman að hvíla okkur. Það var að sjálfsögðu frábært veður eins og alltaf þegar ég fer til Lux og pallurinn hjá Kollu og Arnari óspart notaður frá morgni og töluvert fram á kvöld. Ferðin heim gekk vel en reyndar leit út fyrir á tímabili að ein taskan okkar hefði gleymst í Frankfurt en við vorum með þeim síðustu að ná í töskurnar okkar og eina vantaði en á móti rúllaði ein mjög líkri okkar fram og tilbaka. Við brugðum á það ráð að hringja í eiganda þeirrar tösku og spyrja hana hvort hún væri mögulega með ranga tösku. Við náðum ekki í hana og loks kom starfsmaður til að aðstoða okkar og kom þá ekki fljótlega blessuð konan baðst afsökunar í bak fyrir á ruglingnum. Við hlóum bara og vorum ánægð með að fá töskuna með okkur heim en ekki einhverjum dögum seinna. Jæja, ég ætla að halda störfum mínum áfram, er búin að eyða drjúgum tíma í símanum eins og svo oft. Ákvað að fara yfir símanotkun og endurskoða áskrift þetta er ótrúlegt torf að fara í gegnum og smáa letrið erfiðast. Tala minna segir Hreinn og hætta öllum símhringingum nema þær séu með erindi. Já, einmitt skyldi það að hringja bara til að hringja og heyra í vinkonum sínum sem maður hittir ekki oft flokkast undir erindi. Heldur betur segi ég svo það verður ekki dregið úr því, frekar sleppi ég einhverju öðru, gott spjall getur verið gulli betra.

1 Comments:

  • At 1:52 AM, Anonymous Anonymous said…

    ...Takk fyrir komuna.
    Yndislegur tími með ykkur eins og alltaf.
    Eins og við er að búast þá gleymist alltaf eitthvað, snudda og svört peningabudda varð eftir í bílnum. Ég kem því til Íslands...

    Hafið það gott
    Kolla og co

     

Post a Comment

<< Home