Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, September 25, 2008

Haustverkin

Þar með eru haustverkunum að ljúka. Réttirnar gengu vel og rættist úr veðrinu, fengum góða gesti og þetta var allt eins og það átti að vera, kjötsúpan rann ljúft niður.
Í gær fengum við nágrana okkar til aðstoða við að velja ásetning, stofninn þarf að endurnýja að einhvejru leyti. Svo þagna blessuð lömin seinna í dag en þau verða sótt á eftir. Ég bíð eftir mömmu og ömmu sem eru að koma í sláturgerð og rabbabarasultan að verða tilbúin. Þetta er ekta í sveitinni. Sólin skín og Ásrún tilkynnti mér hissa að sólin væri gul og ekki nema von að við værum búnar að gleyma hvernig hún væri á litin.

Thursday, September 18, 2008

Facebook

Hef alveg vanrækt þessa síðu, ákvað að skella mér í heim fésbókarinnar og sé svo sem ekkert eftir því, læt þetta ekki taka of mikið af tíma mínum en gaman að sjá kunnugleg andlit. Svo ég ræði nú framhald síðustu færslu þá gerðist ég virðulegur áskrifandi umræddrar stöðvar við mikinn fögnuð Freys sem taldi mig vera bestu mömmu í öllum heiminum en pabbi hans er enn að jafna sig. Fyrst sást ekkert svo við þurftum að útvega okkur nýtt loftnet og þá var gott að vera með réttu samböndin því við komust ekki í búð á opnunartíma. Jæja, nú kemur þetta betur út en er þó ekki fullkomið og eins gott að þetta virki 21. þessa mánaðar :-)
Annars hefur haustið minnt hressilega á sig þessa dagana og það kemur svo sem ekkert á óvart að það haustar í ár eins og önnur. Ég reyni nú að láta veðrið ekki pirra mig en er smá svekkt vegna veðurspárinnar á laugardaginn í réttunum en það þýðir þó bara að súpan verður þeim mun betra þegar heim verður komið. Áhugasamir velkomnir í réttir og súpu.

Friday, September 12, 2008

Hví eruð þið áhyggjufull?

Það eru ótal margir hlutir í heiminum sem hægt er að hafa áhyggjur yfir, stórir sem smáir. Þessa daga er ég haldin ákvarðanakvíða og ég get ekki gert upp hug minn. Hversu stórt haldiði að þetta málefni sé? Á ég að fá mér stöð 2 eða ekki? Freyr leggur hart að því að við verðum áskrifendur og nefnir þessar óskir oft við ömmu sína og ætlast til að hún leggi málefninu lið með því að tíunda kosti þess að geta horft að stöðina óruglaða. Mamma slippi þá líklega við stressið sem fylgir því að taka upp Dagvaktina fyrir okkur þegar hún hefur göngu sína. Ég fæ ekki samþykki húsbóndans, hann spyrnir hart við fótum. Hann ólst upp án þess að hafa stöð 2 og telur það líklega hafa haft grundvallandi áhrif á allt hans líf í dag. Ég þekki líka fólk sem ólst upp án þess að hafa sjónvarp að við nefnum nú ekki sjónvarpsleysið á fimmtudögum. Líklega horfir hann þó í aurinn sem óneitanlega hverfur með áskriftinni. Ásrún hefur ekki skoðun á málinu en ég veit að hún hefði ekkert á móti því að hitta Dóru og Sollu stirðu reglulega á skjánum. Eina stundina finnst mér ég vera að brjóta eitthvert prinsipp með að fá mér stöð 2 því við höfum komst ágætlega af án hennar og ég óttast aukið sjónvarpsáhorf í stað bókalesturs sem er allt of lítill fyrir. Hina stundina finnst mér áðdáunarverð sú framleiðsta á íslensku sjónvarpsefni sem unnin er fyrir stöð 2, að mér virðist mun meira en í hinu ríkisstyrkta menningarstjónvarpi. Þar finnst mér Rás 1 sinna ein því góða hlutverki. Já þær eru stórar og miklar ákvarðanirnar sem suma daga þarf að taka :-)

Thursday, September 11, 2008

Veikindi

Ég hef einhvers staðar náð mér í kvef og hálsbólgu og því fylgdi í gær hiti. Mér finnst þetta allt of snemmt fyrir veikindi. Ég reyni að hvíla mig eins og hægt er því það er stíf helgi framundan. Ætlaði í baranafmæli til Dags til Reykjavíkur í kvöld en það er skynsamlegt að fara fremur snemma í ból. Það koma tímar. Vona að kvefið nái ykkur ekki.

Thursday, September 04, 2008

Daglegt brauð

Þá er fríinu lokið og eðlilegt líf tekið við á ný. Þetta var frábært frí í alla staði, við komum hvíld og brosandi hringinn heim á ný. Krakkarni áttu mikið góðar stundir við leik og best finnst mér alltaf við fríin er að vera öll saman að hvíla okkur. Það var að sjálfsögðu frábært veður eins og alltaf þegar ég fer til Lux og pallurinn hjá Kollu og Arnari óspart notaður frá morgni og töluvert fram á kvöld. Ferðin heim gekk vel en reyndar leit út fyrir á tímabili að ein taskan okkar hefði gleymst í Frankfurt en við vorum með þeim síðustu að ná í töskurnar okkar og eina vantaði en á móti rúllaði ein mjög líkri okkar fram og tilbaka. Við brugðum á það ráð að hringja í eiganda þeirrar tösku og spyrja hana hvort hún væri mögulega með ranga tösku. Við náðum ekki í hana og loks kom starfsmaður til að aðstoða okkar og kom þá ekki fljótlega blessuð konan baðst afsökunar í bak fyrir á ruglingnum. Við hlóum bara og vorum ánægð með að fá töskuna með okkur heim en ekki einhverjum dögum seinna. Jæja, ég ætla að halda störfum mínum áfram, er búin að eyða drjúgum tíma í símanum eins og svo oft. Ákvað að fara yfir símanotkun og endurskoða áskrift þetta er ótrúlegt torf að fara í gegnum og smáa letrið erfiðast. Tala minna segir Hreinn og hætta öllum símhringingum nema þær séu með erindi. Já, einmitt skyldi það að hringja bara til að hringja og heyra í vinkonum sínum sem maður hittir ekki oft flokkast undir erindi. Heldur betur segi ég svo það verður ekki dregið úr því, frekar sleppi ég einhverju öðru, gott spjall getur verið gulli betra.