Guðbjörg Arnardóttir

Monday, August 11, 2008

Yfir-vinna

Sigga spyr hvort ég sé búin að gifta yfir mig, ætli sé þá ekki um nýja túlkun á yfir-vinnu að ræða. Ég hef bara verið löt að segja hvað á daga mína hefur drifið, það er nú bara hitt og þetta, höfum verið á flakki; í matarboðum, veislum o.fl. Ásrún byrjuð aftur í leikskólanum og er það fínt, ég er farin að venja komur mínar á ný reglulega á skrifstofuna. Þyrfti hins vegar amk. einn dag til að koma skikkan á heimilið en eins og margir hafa sagt fyrr og nú þá fer þetta ekkert frá okkur og er það því miður satt. Jæja, ég ætla ekki að vera að þessu kvarti. Höfum það öll mjög gott enda einmuna blíða dag eftir dag úti sem í sinni.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home