Uhh .... Nei!
Ég bloggaði um það í morgun að ég væri á leiðinni til Lux, Uhhh .... Nei! Ekki í bili. Fluginu hefur verið frestað til rúmlega tvö í nótt, spennandi að sjá hvort það verður raunin. Við vorum komin í höfuðborgina þegar fréttirnar um seinkunina bárust með smsi. Þá var oft seint að snúa við heim svo við reyndum að gera gott úr þessu. Fórum í pílagrímsferð með börnin á bensínstöðina við Laugaveginn, leituðum að starfsmanni á plani og fundum hann ekki en þegar Hreinn tjáði afgreiðslumanninum erindið, fengu börnin liti og litabók að gjöf. Við létum svo verða af því að fara á Þjóðminjasafnið, búið að vera á planinu lengi. Það var frábær ferð og skemmtum við okkur öll vel, sáum gamla muni úr Keldnakirkju og Odda, upplifunarherbergin slóu í gegn og svo voru í búðinni keyptar gjafir fyrir gestgjafana það er að segja ef við komumst til þeirra. Við reynum annars að láta þetta ekki á okkur fá og erum í dúnduryfirlæti hjá Þrúði og Duffa. Það kvartar enginn og við sláum þessu upp í létt grín frekar en hitt. Hins vegar væri ekki verra að komast í nótt í flugið en þá tekur við veðurspáin yfir landinu einmitt um það leyti sem áætlað er að fara í loftið, eigum við að ræða það eitthvað, nei ég held ekki.
Kannski er okkur ekki ætluð þessi ferð, og þó, ég kem Kolla mín.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home