Sumarauki
Ég horfði stolt með tárin í augunum á herlegheitin og landsliðið í gær í sjónvarpinu. Ég verð svo meyr við svona fjölda, mundi eftir því hvað það var gaman og eftirminnilegt að ganga með konunum 19.júní fyrir 3 árum. Við megum líka alveg fara að gráta af gleði og stolti, við eigum að fagna lífinu og ævintýrum þess þegar færi gefst. Því eins og Þorvaldur Þorsteinsson segir í skilaboðaskjóðinni þá er lífið heimsins besta gotterí. Verum glöð og aftur glöð fyrir lífið og það að vera við sjálf, alveg eins og við erum og þannig elskar Guð okkur.
Við erum annars á leið í frí til Kollu minnar og fjölskyldu á eftir til Lux, hlakka til og börnin mikið spennt enda búið að telja niður. Veðurspáin er ekki af verri endanum:
http://meteo.luxweb.com/
Bless í bili.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home