Skipulag
Ég þrífst á skipulagi, röð og reglu, þá finnst mér allt eins og það á að vera. Einmitt þess vegna leið mér betur í Þýskalandi en Danmörku. Þetta getur stundum skapað árekstra og sérstaklega þegar skipulagið gengur ekki upp en hvað um það, það er þroskandi að takast á við óskipulag inn á milli. Nú er ég að skipuleggja veturinn og vetrarstarfið, finnst gaman að setja þetta niður. Ég tók skrifstofuna í gegn í gær og kom skikk á hana, fór nefnilega á uppáhaldsstaðinn minn, IKEA, og þar er hægt að hafa allt í röð og reglu, kassar og hólf í tugatali. Eiginmanninum bregður örugglega í brún þegar hann kemur heim eftir 3 daga í Veiðivötnum en hann hefur veitt vel skilst mér svo það er silungur í matinn vel fram á haust. Jæja, skipuleggja meira og meira.


2 Comments:
At 1:54 AM,
Anonymous said…
Skipulagt kaos.. skipulagt, skipulagt.. ég er einmitt í þessum skipulagspakka. Ekki gengur of vel að láta allt ganga upp, það er eins og vanti fleiri stundir í vinnudaginn...
Knús,
Sigga
At 1:39 PM,
Anonymous said…
Ég er sjúk í að skipuleggja, þess vegna eru haustin svo skemmtileg ;-)
Sjáumst á morgun
Elfa
Post a Comment
<< Home