Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, August 24, 2008

Landbúnaðarsýning, silfur og brúðkaup

Þetta hefur verið skemmtileg og annasöm helgi sem enn er ekki lokið. Á föstudag var landbúnaðarsýningin á Hellu sett og er hún mjög vel heppnuð að mínu mati, gaman að skoða allt sem er til sýnis. Flott að fólk lét rigningu ekki aftra sér í að fara á sýninguna því hún var vel sótt í gær. Í gær gaf ég saman Ingunni Svölu æskuvinkonu mína og Einar Gunnar, það var frábært og veislan þeirra alveg meiriháttar. Nú svo var það silfrið í morgun, við megum vera virkilega stolt, þetta hefur svo sannarlega sett krydd í tilveruna. Svo er það útimessa á eftir kl. tvö á landbúnaðarsýningunni, gaman að taka þátt í því.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home