Frábært frí
Við komumst til Lux og gekk flugið bara vel, lósin voru slöggt og allir sofnuðu. Nú erum við í dásamlegu yfirlæti hjá Kollu og Arnari. Börnin eru alsæl enda nóg pláss til að hlaupa og leika, þetta er allt eins og best verður á kosið. Hér leika börnin í hverfinu mikið saman og hlaupa á milli húsa. Standard spurning þegar nýjir krakkar bætast í hópinn: ,,Ertu íslensk?" Ásrún fékk þessa spurningu og vissi líklega ekki hvað hún þýddi því hún kom grátandi heim og kvartaði yfir því að stelpan hefði sagt að hún væri íslensk. Við reyndum að fela hláturinn og sögðum henni að það væri alls ekki slæmt að vera íslensk. Jæja, ekki ætla ég að tefja hér lengur, sundferð framundan.

