Lítill frændi
Eignaðist lítinn frænda í nótt, 18 merkur góðan daginn, enda Núparar ekki þekktir fyrir minna. Sif og Kiddi Nonni eru hinir stoltu foreldrar og Salka stóra systir. Hlakka ofsalega til að sjá þennan hæglætisdreng sem lét bíða töluvert eftir sér. Ég var á tímabili farin að óttast að ég væri mögulega berdreymin því mig dreymdi fyrir stuttu að Sif kæmi til mín og færði mér þennan fallega bleika bolla í afmælisgjöf en hjúkk fyrir hana að hafa þurft að bíða fram á miðvikudag.
Annars er þetta flottur dagur, 19. júlí, foreldrar mínir eiga í dag brúðkaupsafmæli 33 ár held ég að ég fari rétt með. Það er gaman að segja frá því að ég kem til með að gefa saman þrenn brúðhjón á þessum fallega sumardegi. Allir til hamingju :-)

1 Comments:
At 2:02 AM,
Anonymous said…
Til hamingju með frændann,
kv.
Sg
Post a Comment
<< Home