Guðbjörg Arnardóttir

Friday, July 04, 2008

Landsmót

Hella hefur tekið á sig allt annan brag síðustu daga. Ég hef að mestu haldið mig heima við. Samdi við börnin að láta nýju rennibrautirnar í sundlauginni bíða fram yfir landsmót enda var biðröð inn í sundlaugina þegar ég keyrði þar framhjá í morgun.
Fór í gær og tók þátt í setningu Landsmóts með hópreið og hugvekju. það gekk bara nokkuð vel, ég var svo stressuð að hálfa hefði veri nóg enda ekki þekkt fyrir mikla hestamennsku en þetta blessaðist allt svo ég er slök í dag.
Á þriðjudag kom hún Edda Ósk úr Kópavoginum í heimsókn og stendur sig vel sem barnapía, freyr fór í staðinn í Kópavoginn og unir sé vel með Palla frænda sínu. Hann kvartar yfir hávaða utan frá á morgna, bílum og lögguhljóðum, ekkert slíkt í sveitinni.
Fékk góða heimsókn á miðvikudag, hana Siggu Gunn að norðan, alveg frábært að hafa hana í morgunkaffi og spjalli, höfum náð að vinna upp hitt og þetta órætt í gegnum tíðina :-) .

1 Comments:

  • At 10:53 AM, Anonymous Anonymous said…

    Þetta voru ljúfir dagar hjá þér, takk fyrir okkur.
    Kv.
    Sigga

     

Post a Comment

<< Home