Ekki barn heldur kona
Átti yndislegan afmælisdag. Fékk Kollu og börnin í heimsókn í gær, elduðum góðan mat, smá hvítvín og spjall. Fórum í sund á Hellu í morgun og út að borða á Árhúsum, fínustu pizzur. Heima var hvíld og síðar afmæliskaka sem Kolla bakaði, ekkert smá dekur. Skelltum okkur síðan á Selfoss og aftur var það veitingastaður, meiri pizza. Fullkominn afmælisdagur, börnin reyndar biðu eftir veislunni hvenær hún myndi byrja og hvenær kæmi allt fólkið, svo voru þau sammála um að mamma þeirra væri ekki afmælisbarn heldur kona.
Góða nótt og Guð geymi ykkur og þakka allar góðar afmæliskveðjur.
Góða nótt og Guð geymi ykkur og þakka allar góðar afmæliskveðjur.


1 Comments:
At 12:39 PM,
Anonymous said…
Til hamingju með afmælið ´skan, og Guð geymi ykkur öll um verzló:-)
Kv.
Sigga
Post a Comment
<< Home