Ótrúlegt veður
Það var eins og að vera stödd í suður Evrópu þegar ég drakk morgunkaffið úti í gær, nema þar er Eyjafjallajökullinn ekki svona fallegur. Eyddi deginum á flakki um Reykjavík í gær, ekkert í sólinni. Börnin léku sér í tuttugu stiga hita léttklædd fram undir miðnætti úti í gær. Njóta þess þegar færi gefst. Erum annars á leið í Veiðivötn fjölskyldan, spennandi. Krökkunum hlakkar mikið til, tengdapabbi fer líka og fleira gott fólk, veðrið lítur vel út, 15° hiti núna klukkan 6:30. Svo er það Grímsnesið um helgina, hin margumtalaða versló og það að sjá kvikna í brennunni sem við höfum fylgst með stækka frá því í vor. Fariði varlega næstu daga.

