Þórsmörk
Ég sá það um leið og ég byrjaði á fyrisögninni að ég hef bloggað áður um Þórsmörk. Það er kannski ekki skrýtið því þetta er einn af mínum uppáhaldsstöðum. Reyni að fara þangað amk. tvisvar á sumri. Fórum á fimmtudaginn með Rotary, smá gróðursetning svo grill og gaman. Það var reyndar ekki nógu gott veður eða öllu heldur skyggni á fjöllin og jökla. Það tolldi þó þurrt að mestu allan tímann. Hins vegar var lyktin af birkinu himnesk í bleytunni. Þetta var allt of stutt stopp og ég finn að þarf að fara fljótlega aftur og vera yfir nótt.
Nú er að koma sér í fötin og skunda í kvennahlaupið á Hellu kl. 11:00. Ég, Ásrún og Freyr ætlum öll og Frey er alveg sama þó hann sé karlmaður og liturinn fer honum vel. Hann hefur heldur ekki í hyggju að koma af stað hlaupi sérstaklega fyrir karlmenn. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það, þ.e.a.s. karlmennsku eða kalrremdbuhlaup á sama tíma og kvennahlaup. Megum við bara ekki vera í friði? Jæja, hvað um það áfram konur, stöndum saman! Jú, jú áfram þið líka strákar mínir!

1 Comments:
At 5:42 AM,
Anonymous said…
Þórsmörk er einn magnaðasti staður á Íslandi. Ég verð enn að bíða en var reyndar búin að plana gönguferð yfir Fimmvörðuháls í ágúst. Þórsmörk fer ekki neitt. Góða skemmtun með prestum, mér líður eins og svikara að koma ekki og skemmta mér með þér:-)
Kv.
Sigga
Post a Comment
<< Home