Guðbjörg Arnardóttir

Friday, June 13, 2008

EM

Ég held með Þýskalandi og hvað með það en ég man að fyrir nokkrum árum var Holland númer tvö á listanum, ekki slæmt í dag. Ég man að síðast þegar þeir voru svona góðar var Gullit í toppformi. Mamma og pabbi voru þá einu sinni stödd í Amsterdam og pabbi mætti kappanum bara á röltinu eins og maður mætir Jóni Jóns á Laugarveginum. Pabbi ljómaði eins og sól og sveif inn á hótelherbergi til mömmu og bað hana að geta upp á því hvern hann hefði séð berum eins og við segjum það í minni fjölskyldu. Mamma gat ekki upp á því en mun meira vonbrigði voru þegar pabbi sagði henni hvern hann hefði séð og ekkert gerðist, hún var engu nær um það af hverju pabbi var svona upprifinn. Jæja, hvað um það. Það mætti eiginlega fara að rigna eða verða minna að gera hjá mér svo ég geti farið að horfa almennilega á boltann. Sé annars fyrir mér fríið mitt í bústaðnum með mömmu en þá verða undanúrslitin, ekki slæmt en ég ekki svo viss um að við mamma deilum þeirri tilhlökkun.

2 Comments:

  • At 11:48 PM, Anonymous Anonymous said…

    Ég haga seglum eftir vindi og held með því liði sem ég álít sigurstranglegast hverju sinni.
    Í þetta skiptið eru það Hollendingar. En óþægileg áminning um tímans þunga nið að Van Basten er orðinn þjálfari, mér finnst örstutt síðan hann var sjálfur í treyju og takkaskóm.
    Hér er glampandi sól og himneskur friður, því enginn er kominn á fætur á Sauðárkróki.
    Kv.
    Sigga

     
  • At 10:53 AM, Anonymous Anonymous said…

    gudbjara.blogspot.com is very informative. The article is very professionally written. I enjoy reading gudbjara.blogspot.com every day.
    quick cash loans
    online payday loans canada

     

Post a Comment

<< Home