Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, June 22, 2008

Frí

Farin í sumarfrí með börnin í bústaðinn til mömmu og verðum fram að næstu helgi, gaman gaman :-)

Thursday, June 19, 2008

19. júní

Til hamingju með daginn stelpur!

http://tru.is/pistlar/2008/6/gud-er-bara-gud

Friday, June 13, 2008

EM

Ég held með Þýskalandi og hvað með það en ég man að fyrir nokkrum árum var Holland númer tvö á listanum, ekki slæmt í dag. Ég man að síðast þegar þeir voru svona góðar var Gullit í toppformi. Mamma og pabbi voru þá einu sinni stödd í Amsterdam og pabbi mætti kappanum bara á röltinu eins og maður mætir Jóni Jóns á Laugarveginum. Pabbi ljómaði eins og sól og sveif inn á hótelherbergi til mömmu og bað hana að geta upp á því hvern hann hefði séð berum eins og við segjum það í minni fjölskyldu. Mamma gat ekki upp á því en mun meira vonbrigði voru þegar pabbi sagði henni hvern hann hefði séð og ekkert gerðist, hún var engu nær um það af hverju pabbi var svona upprifinn. Jæja, hvað um það. Það mætti eiginlega fara að rigna eða verða minna að gera hjá mér svo ég geti farið að horfa almennilega á boltann. Sé annars fyrir mér fríið mitt í bústaðnum með mömmu en þá verða undanúrslitin, ekki slæmt en ég ekki svo viss um að við mamma deilum þeirri tilhlökkun.

Komin heim

Þá er prestastefnu lokið og ég komin heim á ný, er reyndar varla búin að taka upp úr töskum enn, en það kemur. Prestastefnur eru frábærar, það er svo gaman að hitta kollegana og tala saman um allt sem okkur finnst skipta máli og líka um það sem skiptir ekki nokkrum máli og við hlæjum. Fjölmiðlar hafa reyndar kannski átt í erfiðleikum því allt sem við fjölluðum um var svo frábært og jákvætt fyrir kirkjuna og alla, það er ekki nógu spennandi að tala um það. Svarthöfði náði þó að krydda þetta smá. Mér fannst þetta auðvitað hlæjilegt en þó náði ég aldrei þeim málstað sem hann vildi koma á framfæri, frétti síðar að hann hefði verið á vegum vantrúar. Mér finnst samt þess virði að taka til athugunar að ekki var gert nokkuð úr þessu og eins og alltaf bjóðum við hinn vangann og létum þetta fara sína leið. Jæja, þarf að koma mér í verkefnin sem bíða. Heyrumst.

Monday, June 09, 2008

Prestastefna

Ég bregð undir mig betri fætinum á morgun og held í höfuðborgina á hina virðulega prestastefnu. Það er þó ekki nema með rétt 1/3 hug að ég fer og bara vegna þess að hugurinn ber mig þangað því mín hægri hönd og eiginlega líka vinstri á prestastefnu má sig sem minnst hreyfa. Ég er einnig viss um að þegar við færum að byrja að pískra og gantast þá myndi hún gleyma því að hásinin er slitin og skunda á tjúttið á kaffi þú veist Sigga. En láttu þér batna það koma aðrar stefnur eftir þessi enda ekki nema ein búin :-)
Það verður eitt og annað tekið fyrir en þó líklega ekkert nógu krassandi fyrir fjölmiðla að gera sér mat úr eða reynir kannski núna fyrst á þá? Það er þá alltaf hægt að tala um EM í staðinn.

Saturday, June 07, 2008

Þórsmörk

Ég sá það um leið og ég byrjaði á fyrisögninni að ég hef bloggað áður um Þórsmörk. Það er kannski ekki skrýtið því þetta er einn af mínum uppáhaldsstöðum. Reyni að fara þangað amk. tvisvar á sumri. Fórum á fimmtudaginn með Rotary, smá gróðursetning svo grill og gaman. Það var reyndar ekki nógu gott veður eða öllu heldur skyggni á fjöllin og jökla. Það tolldi þó þurrt að mestu allan tímann. Hins vegar var lyktin af birkinu himnesk í bleytunni. Þetta var allt of stutt stopp og ég finn að þarf að fara fljótlega aftur og vera yfir nótt.
Nú er að koma sér í fötin og skunda í kvennahlaupið á Hellu kl. 11:00. Ég, Ásrún og Freyr ætlum öll og Frey er alveg sama þó hann sé karlmaður og liturinn fer honum vel. Hann hefur heldur ekki í hyggju að koma af stað hlaupi sérstaklega fyrir karlmenn. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það, þ.e.a.s. karlmennsku eða kalrremdbuhlaup á sama tíma og kvennahlaup. Megum við bara ekki vera í friði? Jæja, hvað um það áfram konur, stöndum saman! Jú, jú áfram þið líka strákar mínir!

Wednesday, June 04, 2008

Bæjarferð

Það hefur nú ýmislegt gerst síðan skrifað var um umræddan nagla, skjálftinn er á allra vörum. Við skulfum smá hér fyrir austan en hér ryfjast upp fyrir fólki skálftinn 2000 og þá var allt hér eins og það er í dag jarðskjálftasvæðinu. Sem betur fer eru allir heilir og það er fyrir öllu.

Freyr er komin í sumarfrí og útskrifaður úr 1. bekk. Hann fær að fylgja móður sinni þessa vikuna við hitt og þetta. Mikið sport var að taka hjólið með á Hellu á mánudaginn og meðan ég var á skrifstofunni gat hann hjólað til bekkjarfélaga síns og þeir hjólað saman. Ægilega gaman.

Við skelltum okkur svo í Kringluna í dag, ég missti mig enda langt síðan ég hef komist í höfuðborgina til að pæjast, kortið fékk að svitna á meðan.