Guðbjörg Arnardóttir

Tuesday, May 06, 2008

Lömb
















Fyrstu lömbin komu í nótt. Tvær báru, önnur tvílemba og hin þrí. Sú með þau þrjú náði ekki öllum á legg, það hefðu einhverjir gefist upp en Anna sem er einstakur dýravinur gafst ekki upp og þrátt fyrir tilraunir var lamdið ekki enn komið á lappir áðan svo hún er búin að koma því í fóstur á næsta bæ þar sem átti að láta reyna á að koma því á eina sem fékk bara eitt lamb í nótt. Spennandi, ég hefði reyndar mikið viljið halda í það því það var eitt svart en hin fjögur hvít. Jæja, þið vitið að þetta með lömbin okkar er eins og með börnin. Í hvert sinn sem eigið barn nær einhverjum þroska tökum við því að sjálfsögðu eins og það sé einstakt og sérstakt í heiminum. Það er því fyrir okkur eins og það hafi aldrei fyrr borið á landinu fyrr en í nótt. Hér er smá syrpa. Og ein af litlu mennsku púkaskotti, glöggir lesendum mega geta hver er mamma hennar :-)










4 Comments:

  • At 11:15 AM, Anonymous Anonymous said…

    Barnið á efstu myndinni líkist þónokkuð prestinum í Odda.

     
  • At 10:55 AM, Anonymous Anonymous said…

    já ætli þær séu skyldar ??? Elfa

     
  • At 5:58 PM, Anonymous Anonymous said…

    Mikið er falleg tungan í Ásrúnu,
    hef séð svipaðan svip einhversstaðar áður. Var hún nokkuð leið yfr lömbunum?
    Kv. GÓ

     
  • At 1:38 AM, Anonymous Anonymous said…

    Til hamingju með þessu fallegu lömb. Ég ráðlegg ykkur að marka þau meðan þau eru enn lítil, af tveimur ástæðum. a) meðan þið náið þeim b) það blæðir meira eftir því sem að þau eru stærri. Flott tungan í heimasætunnu. Hún er sæt eins og móðir sín. Hlakka til að sjá þig á fimmtudag.
    Kv.
    SG

     

Post a Comment

<< Home