Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, May 22, 2008

Euro

Hjálp! Ég kemst ekki undan íslenska Eurovision laginu. Það hljómar og hljómar í hausnum á mér og það er notað í annarri hverri auglýsingu í útvarpinu. Verð sem fyrst að slökkva á viðtækinu og finna einhvern góðan disk í tölvunni. Annars verður maður að sjá atriðið í kvöld. Er reyndar ekki að farast úr spenningi. Ég þekki konu en vil engin nöfn nefna, hún setti alltaf hreint á rúmin á fyrstu keppnisárum Íslands í Eurovison. Hún er nú hætt því núna, spenningurinn og herlegheitin eitthvað minnkað.
Ég hlakka hins vegar til að fara að sofa í kvöld og sé fram á að sofa í einum dúr þangað til Freyr á að fara á fætur. Sú síðasta bar í nótt, það er reyndar ein eftir en hún verður ekki fyrr en eftir viku til tvær, svo það er nokkrar heilar nætur framundan.
Gleðilegt Euro kvöld.

1 Comments:

  • At 9:37 AM, Anonymous Anonymous said…

    Hvað er þetta Gugga! Koddu með nafnið ;o) Annars er ég og hef aldrei verið euro fan.... en ætli maður neyðist ekki til að hafa allaveganna stillt á rúv í kvöld!

    Knús!

     

Post a Comment

<< Home