Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, May 28, 2008

Nagli

Það hefur verið blíðan í dag. Mig klæjar í puttana og vildi helst bara vera úti að róta í beðum. Skaust aðeins til Vinsýar og setti smá blóm niður. Ég þarf hins vegar að sinna Guðs orðinu, það er ekki að virka að hafa tölvuna úti, það sést ekkert á skjáinn. Annað var að ég sat yfir draghöltum syni mínum. Hann var að leika sér á næsta bæ í gær og hoppaði á nagla sem fór í gegnum skóinn og eins langt og hann náði inn í ilina. Þetta var án efa sárt og finnur hann til en það er yfirleitt mikið drama þegar hann meiðir sig og hefur hann borið sig í hæsta máta aumlega. Byrjaði á að skríða í morgunmatinn, hoppaði eitthvað á einni en stígur nú öðru hvoru í löppina. Þetta vonandi grær fljótt og auðveldlega.

Monday, May 26, 2008

Hjól

Ég er búin að vera lengi á leiðinni í átak að hreyfa mig meira. Fara að ganga eða hjóla. Alltaf finn ég mér afsökun að byrja þá eða þarna o.s.frv. samt finnst mér ekki leiðinlegt að hreyfa mig. Jæja, síðasta stefna var tekin að fara af stað þegar sauðburði væri lokið og vökukaflar ekki lengur á dagskrá á nóttinni. Ég lofaði mér í gærkvöldi að byrja í morgun. Svo hringdi vekjaraklukkan og ég hugsaði strax með mér ég skyldi nú bara drífa mig í kvöld :-) Svo sagði ég nei, ekkert svona bull Guðbjörg, þú skellir þér út. Ég leitaði og leitaði að hjólafötunum, taldi það nauðsyn þess að komast í hjólatúrinn. Ég var við það að hætta við áform mín þegar þau komu upp í henurnar á mér. Já, þá var að koma sér að af stað og allt klárt. Nema hjólið, þegar ég var komin af stað kom strax í ljós að gírarnir voru ekki að virka, svo það var bara ein stilling alla leið. Ég ákvað að láta það ekki stoppa mig og hjólaði upp að afleggjara og tilbaka. Þetta var algjör snilld, ég var búin að gleyma því hvað mér finnst gaman að hjóla. Nú bíður Rauðka mín eftir hjólakallinum að hann líti á hana eftir vinnu. Ég vona að hún dæmist ekki úr leik heldur verði hægt að lappa upp á hana. Ef ekki er komin hugmynd af afmælisgjöf fyrir eiginmanninn, sem afhendist fyrir afmæli. Þá er að blása lífi í gamlan hjólaáhuga hjólakallsins og koma fjölskyldunni af stað í sameiginlegt áhugamál. Er það ekki málið? Ein alveg í stuði eftir hjólaferðina, sjáum hvað það endist lengi :-)

Thursday, May 22, 2008

Euro

Hjálp! Ég kemst ekki undan íslenska Eurovision laginu. Það hljómar og hljómar í hausnum á mér og það er notað í annarri hverri auglýsingu í útvarpinu. Verð sem fyrst að slökkva á viðtækinu og finna einhvern góðan disk í tölvunni. Annars verður maður að sjá atriðið í kvöld. Er reyndar ekki að farast úr spenningi. Ég þekki konu en vil engin nöfn nefna, hún setti alltaf hreint á rúmin á fyrstu keppnisárum Íslands í Eurovison. Hún er nú hætt því núna, spenningurinn og herlegheitin eitthvað minnkað.
Ég hlakka hins vegar til að fara að sofa í kvöld og sé fram á að sofa í einum dúr þangað til Freyr á að fara á fætur. Sú síðasta bar í nótt, það er reyndar ein eftir en hún verður ekki fyrr en eftir viku til tvær, svo það er nokkrar heilar nætur framundan.
Gleðilegt Euro kvöld.

Góðir tónleikar

Fór á skemmtilega tónleika í gær. Það var Stúlknakórinn Hekla sem er stúlknakór Odda- og Þykkvabæjarkirkna. Sömuleiðis söng kirkjukórinn ásamt Kristjönu og Gísla Stefáns. Undirleikur var m.a. í höndum Vignis Stefáns o.fl. Þetta voru rosalega skemmtilegir tónleikar. Frábært fyrir kórinn að komast í smá sveiflu. Þetta eru flottir kórar sem ég er stolt yfir að tilheyri prestakallinu.

Sunday, May 18, 2008

Vestmannaeyjar


Þetta var ótrúlega annasöm helgi, hafiði heyrt þennan áður?

Fór á föstudegi með Bakkaflugi til Eyja, með leiðtogaefnin mín, þó ekki nema þrjú en þau eru svo frábær að þau eru á við tíu. Freyr fékk að fylgja mömmu sinni, Ásrún var alveg sátt þar sem hún fékk að vera hjá Trostani og co og gista þar. Eyjar voru frábærar og vel tekið á móti okkur, allt eins og best verður á kosið. Ótrúlegt hvað það er stutt að fljúga. Við gistum í safnaðarheimili Landakirkju. Það er skrýtið að rata þaðan, ég rata í Eyjum með því að byrja í dalnum, heheheh. Við Freyr þurftum að fara í gærkvöldið tilbaka. Í dag var það ferming, skírn og tvö hjónaviðtöl og náði auk þess að kíkja í 7 ára afmæli Birtu í nýja húsið hennar. Leiðtogaefnin urðu eftir í Eyjum og útskrifuðust í dag úr Farskóla leiðtogaefna á suðurlandi, skemmtilegt tilraunaverkefni.

Hér fylgir ein mynd af Frey í siglingu sem við fórum í.

Tuesday, May 13, 2008

Hvítasunnuhelgi

Gleðilega hvítasunnu!
Helgin leið hratt og örugglega. Ég við vinnu; gifta, ferma og skíra, en þó var dagurinn í gær frjáls. Við viðuðum að okkur börnum á sunnudag svo það var fullt hús og mikið fjör. Ég held að bæjar- og borgarbörin hafa verið alsæl í sveitinni og helst ekki viljað fara í gær. Það var slík blíða á 2. í hvítasunnu að það sást eiginlega ekki nema undir iljarnar á börnunum. Það er lúxus þegar börnin hafa önnur börn á leika við, þá verður vinnufriður. Ég gat því hjálpað til við að laga gerðið og rífa niður annað. Það er mikið að gera á þó ekki stærra sveitaheimili en þetta. Þetta var yndislegur dagur og notalegt að dundast heima við útivinnu. Horfi fram á viku sem verður fljót að líða, góðar stundir.

Tuesday, May 06, 2008

Lömb
















Fyrstu lömbin komu í nótt. Tvær báru, önnur tvílemba og hin þrí. Sú með þau þrjú náði ekki öllum á legg, það hefðu einhverjir gefist upp en Anna sem er einstakur dýravinur gafst ekki upp og þrátt fyrir tilraunir var lamdið ekki enn komið á lappir áðan svo hún er búin að koma því í fóstur á næsta bæ þar sem átti að láta reyna á að koma því á eina sem fékk bara eitt lamb í nótt. Spennandi, ég hefði reyndar mikið viljið halda í það því það var eitt svart en hin fjögur hvít. Jæja, þið vitið að þetta með lömbin okkar er eins og með börnin. Í hvert sinn sem eigið barn nær einhverjum þroska tökum við því að sjálfsögðu eins og það sé einstakt og sérstakt í heiminum. Það er því fyrir okkur eins og það hafi aldrei fyrr borið á landinu fyrr en í nótt. Hér er smá syrpa. Og ein af litlu mennsku púkaskotti, glöggir lesendum mega geta hver er mamma hennar :-)










Sunday, May 04, 2008

Ég sem hélt ....

Ég gortaði innra með mér yfir því að við værum líklega sloppin við flensuna úr þessu. Þetta byrjaði hægt og rólega á fimmudag og í gær var ég alveg frá. Ég man bara ekki síðan hvenær ég hef verið svona veik, þetta er ótrúlega óþægilegt. Það versta er að ég kemst ekki í hitting til Karenar, sem er mjög slæmt. Það koma tíma og flensan er ekki eilíf.
Leit annars út um gluggann áðan á sá bara góðan daginn kindurnar nánast fyrir utan gluggann svo við Anna hlupum út og náðum þeim sem betur fer inn aftur. Þær hafa kannski ætlað á fæðingadeildina, telja sig eiga betra skilið en gerðið. Við bíðum enn eftir fyrsta lambinu.