Afmæli

Kleinurnar heppnuðust vel og eru góðar, ég er að verða búin með minn skammt og það þýðir bara að full þörf er á að steikja fljótlega aftur.
Freyr verður 7 ára á morgun, 17. apríl. Pabbi hans var búin að kaupa handa honum hjól fyrir nokkrum vikum og það búið að hanga inn í bílskúr óséð fram að síðustu helgi. Ég gat ekki beðið lengur og stakk upp á hvort Feyr mætti ekki taka forskot á sæluna svo hann gæti hjólað um helgina. Jú, hann fékk fjársjóðskort í hendur og fann hjólið. Mikið sæll og glaður hjólaði hann og hjólaði á laugardeginum. Á sunnudag var ekki mikið hægt að hjóla enda allt á kafi í snjó, það trúa því kannski ekki allir en samt er það satt. Rafmagnið fór einnig af snemma á sunnudagsmorgni, ferming framundan og prédikunin óútprentuð. Humm! Þökk fyrir safnaðarheimilið á Hellu og þar var rafmagn svo hjúkk.
Sjóræningjaafmæli á morgun og hinn. Hæ hó! Hæ hó!


3 Comments:
At 2:20 AM,
Gunnur said…
Til hamingju með afmælið Freyr !!!
Knús frá Lystrup
At 10:16 AM,
Anonymous said…
Til hamingju með afmælið elsku Freyr... Afmæliskossar frá okkur.
Vona nú að snjórinn fari að láta sig hverfa svo að þú getir hjólað eins og brjálæðingur um suðurlandsundirlendið.
knús....
Ása Ninna og strumparnir
At 4:23 AM,
Anonymous said…
Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the Aluguel de Computadores, I hope you enjoy. The address is http://aluguel-de-computadores.blogspot.com. A hug.
Post a Comment
<< Home