Guðbjörg Arnardóttir

Friday, April 25, 2008

Gleðilegt sumar

Allt á fljúgandi ferð þessa daga, gott að eiga vorið, það er einhver magnaðasta sköpun Guðs.

Ég vissi það og veit það enn
að vorið alla bætir,
að bæði guð og góða menn
með geislunum það kætir.
Og vekur líf um völl og sund
og vetrar gadinn bræðir
og sjúka hugsun, sjúka lund,
með sólskininu græðir.
Davíð Stefánsson

Wednesday, April 16, 2008

Afmæli


Kleinurnar heppnuðust vel og eru góðar, ég er að verða búin með minn skammt og það þýðir bara að full þörf er á að steikja fljótlega aftur.

Freyr verður 7 ára á morgun, 17. apríl. Pabbi hans var búin að kaupa handa honum hjól fyrir nokkrum vikum og það búið að hanga inn í bílskúr óséð fram að síðustu helgi. Ég gat ekki beðið lengur og stakk upp á hvort Feyr mætti ekki taka forskot á sæluna svo hann gæti hjólað um helgina. Jú, hann fékk fjársjóðskort í hendur og fann hjólið. Mikið sæll og glaður hjólaði hann og hjólaði á laugardeginum. Á sunnudag var ekki mikið hægt að hjóla enda allt á kafi í snjó, það trúa því kannski ekki allir en samt er það satt. Rafmagnið fór einnig af snemma á sunnudagsmorgni, ferming framundan og prédikunin óútprentuð. Humm! Þökk fyrir safnaðarheimilið á Hellu og þar var rafmagn svo hjúkk.

Sjóræningjaafmæli á morgun og hinn. Hæ hó! Hæ hó!

Wednesday, April 09, 2008

Í kleinu

Fór í kleinu í gær þegar ég var með æskulýðsfund og það átti að vera saklaus skemmtan. Blöðrublak en einum tókst að sparka í puttann á öðrum og við til vakthafandi læknis og puttinn myndaður því okkur leist ekki á blikuna. Ekkert brot en þarf að fylgjast með þessu.
Er á heimleið og mamma og fleiri á leiðinni þangað líka, það stendur til að baka kleinur, ég hlakka til. Það er eiginlega alvg nauðsynlegt að baka kleinur og eiga í sveitinni, ef vel tekst til fá allir sem koma í vor og sumar kleinur með kaffinu. Mér þótti miður eða þannig að þegar biskupinn kom í kaffi fyrir tæpu ári síðan bauð ég honum upp á kleinur og ég gat að sjálfsögðu ekki annað en viðurkennt að þær væri ekki heimabakaðar.