Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, March 13, 2008

Of snemmt aprílgabb

Hehe! Mundi allt í einu eftir vekjaraklukkuatriðinu. Í ,,morgun'' hringdi vekjaraklukkan og ég gerði ekki annað en skella á hana aftur og ætlaði að blunda í fimm mínútur í viðbót alveg ferlega þreytt. Næst þegar hún hringdi lét ég hana blunda á ný en byrjaði að vekja Frey sem búin var að lauma sér upp í. Heyri út undan mér að Hreinn er kominn í sturtu og þar sem klukkan minnir nú á sig í þriðja sinn verður mér litið á hana og viti menn hún er 04:00. Ég skaust á baðið til að athuga hvort Hreinn vissi hvað klukkan væri og hann vissi svo sem ekki hvað hún væri nákvæmlega og ekki grunaði hann að hún væri ekki nema 04:00 enda orðin nokkuð hress af sturtubaðinu :-) Það var þá ekki annað í boði en að stilla klukkuna rétt og halda áfram að sofa. Ásrún viðurkenndi ,,glæpinn" þegar hún vaknaði um morguninn.

1 Comments:

  • At 2:41 AM, Anonymous Anonymous said…

    Vá, þetta var nú fyndin saga. Einbeyttur brotavilji hjá þeirri stuttu eða hvað? Er mjög leið að hafa ekki hitt þig í gær. Nóg að gera svo sem, mér leiðist ekki af verkefnaskorti en slæmt að missa úr.
    Kv.
    Sg

     

Post a Comment

<< Home