Guðbjörg Arnardóttir

Monday, March 31, 2008

Gosi


Við fjölskyldan brugðum undir okkur betri fætinum og fórum í höfuðborgina á laugardaginn, í Borgarleikhúsið þar sem við sáum Gosa, alveg frábært. Mér hefur alltaf þótt erfitt að horfa á eða lesa Gosa, ég finn svo til þegar hann leiðist út í alla þessa vitleysu og eftir situr pabbi hans og grætur. Gosi var hins vegar mjög sannfærandi í Borgarleikhúsinu sem spýtustrákur og algjör óviti svo ég fann ekki eins mikið til eða sýndi því smá meiri skilning að hann þyrfti að læra þó það væri ekki nema af mistökum sínum. Það væri hægt að semja langa prédikun um Gosa og boðskapinn í honum. Börnin voru ánægð og sátt við sýninguna, Freyr var fegin að finna enga nálykt í Borgarleikhúsinu en hann hefur verið mjög upptekin af þessu orði og beðið um miklar útskýringar eftir að hann heyrði umræðuna sem varð eftir að ónefndur gagnrýnandi lét þessi orð falla. Eftir sýningu heimsóttum við vini í höfuðborginni, snilldar heimsókn. Á sunnudag var ferming ársins í Odda og við fengum heimsókn eftir hana. Það er greinilega komin vorhugur í fólk og það hægt og rólega að skrýða úr hýðinu og fara á stjá hjá vinum og vandamönnum og á þetta vel við um mig persónulega, nú er komin tími til að hitta fólk. Annars var athyglisverð sjónvarpsdagskráin í gær. Fyrst Mannaveiðar sem mér finnst reyndar bara skemmtilegur þáttur af því hann er íslenskur, annars er hann ekki spennandi og á margan hátt ósannfærandi og klaufalegur, en leikurinn ef yfirleitt flottur, hvað um það ekki of mikið af neikvæðni. Þar á eftir var danska myndin Epli Adams. Mjög skemmtilega Biblíustef í gangi og flottar pælingar.
Jæja, allt of löng færsla. Skelli einnig inn mynd helgarinnar.

3 Comments:

  • At 3:03 AM, Blogger Gunnur said…

    Knús í sveitasæluna :-)

     
  • At 10:38 AM, Anonymous Anonymous said…

    Aftur útlendingar byrjaðir að kommenta hjá þér ;-) Annars er þetta rosa sæt mynd, þurfti greinilega ekki klíku til að fá að taka mynd í þetta skiptið ;-)
    kv. Elfa

     
  • At 5:09 PM, Anonymous Anonymous said…

    Fór hér inn til að fylgjast með.
    Skellti upp úr þegar ég las þetta með nályktina. Fyndið hvernig börnin grípa hlutina bókstaflega og koma svo með það löngu seinna. Enda var það ekki þetta sem maðurinn meinti þarna um árið?
    kv Gerður

     

Post a Comment

<< Home