Guðbjörg Arnardóttir

Monday, March 31, 2008

Gosi


Við fjölskyldan brugðum undir okkur betri fætinum og fórum í höfuðborgina á laugardaginn, í Borgarleikhúsið þar sem við sáum Gosa, alveg frábært. Mér hefur alltaf þótt erfitt að horfa á eða lesa Gosa, ég finn svo til þegar hann leiðist út í alla þessa vitleysu og eftir situr pabbi hans og grætur. Gosi var hins vegar mjög sannfærandi í Borgarleikhúsinu sem spýtustrákur og algjör óviti svo ég fann ekki eins mikið til eða sýndi því smá meiri skilning að hann þyrfti að læra þó það væri ekki nema af mistökum sínum. Það væri hægt að semja langa prédikun um Gosa og boðskapinn í honum. Börnin voru ánægð og sátt við sýninguna, Freyr var fegin að finna enga nálykt í Borgarleikhúsinu en hann hefur verið mjög upptekin af þessu orði og beðið um miklar útskýringar eftir að hann heyrði umræðuna sem varð eftir að ónefndur gagnrýnandi lét þessi orð falla. Eftir sýningu heimsóttum við vini í höfuðborginni, snilldar heimsókn. Á sunnudag var ferming ársins í Odda og við fengum heimsókn eftir hana. Það er greinilega komin vorhugur í fólk og það hægt og rólega að skrýða úr hýðinu og fara á stjá hjá vinum og vandamönnum og á þetta vel við um mig persónulega, nú er komin tími til að hitta fólk. Annars var athyglisverð sjónvarpsdagskráin í gær. Fyrst Mannaveiðar sem mér finnst reyndar bara skemmtilegur þáttur af því hann er íslenskur, annars er hann ekki spennandi og á margan hátt ósannfærandi og klaufalegur, en leikurinn ef yfirleitt flottur, hvað um það ekki of mikið af neikvæðni. Þar á eftir var danska myndin Epli Adams. Mjög skemmtilega Biblíustef í gangi og flottar pælingar.
Jæja, allt of löng færsla. Skelli einnig inn mynd helgarinnar.

Tuesday, March 25, 2008

Áfram í ljósi upprisunnar




Þá er páskatörninni lokið. Það var nóg að gera en auðvitað gaman, það gladdi mig ótrúlega hvað athafnir voru vel sóttar þessa páskana í öllum kirkjum. Við nældum okkur í smá frí í bústaðnum frá föstudegi og fram á laugardag. Það var flott að skjóstast í bústaðinn, pottinn og að ég tali nú ekki um allt fólkið sem við hittum og höfum ekki hitt lengi, gaman gaman.


Hreinn tók þessa flottu mynd að kvöldi föstudagsins langa, hann tók einnig aðrar frábærar myndir af fullu páskatungli og ljósbroti sitt hvorum megin við það.


Nú er það áfram veginn og lifuð af fullum krafti í ljósi upprisunnar og lífsins, ekki satt :-)


Tuesday, March 18, 2008

Til umhugsunar

Var að vafrast á kirkjan.is eins og svo mjög oft áður. Les af og til pistla og prédikanir eftir kollega. Þessi finnst mér hreint frábær. Hann hvetur okkur til umhugsunar, einmitt það sem við eigum að gera á föstu og í dymbiliviku/kyrruviku.
http://tru.is/pistlar/2008/03/krossar-i-kyrruviku

Hvað haldiði með skófluna

Ég var að enda við að þrífa bílinn minn, hann var ..... say no more! Ég veit að ég hef augljóslega ekki erft bílaþrifnað föður míns. Ég veit að hann hefur oft hálf lokað augunum þegar hann er að setja börnin mín í bílinn minn og haft sitt hvað að segja þegar ég hef rennt úr hlaði. Hvað um það, nú er allt fínt, þar til .... eftir tvo daga eða svo. Jæju, tæmdi skottið og treysti því að ég þurfi ekki skólfuna meira þennan vetur, vona að svo svakalegt hret geri ekki. Fyrst bílinn er orðinn hreinn er þá ekki rétt að fara að setja saman í prédikun fyrir skírdag?

Thursday, March 13, 2008

Of snemmt aprílgabb

Hehe! Mundi allt í einu eftir vekjaraklukkuatriðinu. Í ,,morgun'' hringdi vekjaraklukkan og ég gerði ekki annað en skella á hana aftur og ætlaði að blunda í fimm mínútur í viðbót alveg ferlega þreytt. Næst þegar hún hringdi lét ég hana blunda á ný en byrjaði að vekja Frey sem búin var að lauma sér upp í. Heyri út undan mér að Hreinn er kominn í sturtu og þar sem klukkan minnir nú á sig í þriðja sinn verður mér litið á hana og viti menn hún er 04:00. Ég skaust á baðið til að athuga hvort Hreinn vissi hvað klukkan væri og hann vissi svo sem ekki hvað hún væri nákvæmlega og ekki grunaði hann að hún væri ekki nema 04:00 enda orðin nokkuð hress af sturtubaðinu :-) Það var þá ekki annað í boði en að stilla klukkuna rétt og halda áfram að sofa. Ásrún viðurkenndi ,,glæpinn" þegar hún vaknaði um morguninn.

Allt sem er bjart, bjart ......

Allt sem er bjart, bjart finnst mér vera fallegt fyrir vin minn, lítinn Íslending.
Það er svo frábært þegar daginn lengir og lengir. Orkan flæðir um allt. Skelltum okkur í sund á Selfossi í gær og það er ótrúleg stemning þegar maður er ekki þar á hverjum degi, mikið hoppað og rennt sér í stóru.
Annars eru páskar framundan, keyptum páskaegg í gær og skilur Ásrún ekki bofs í því að þurfa að geyma þau til páska, páskar hvað er það? Jú, það styttist í þá, ekki nema vika í skírdag.

Sunday, March 02, 2008

Vetrarríki


Ég og börnin skelltum okkur á föstudaginn í bústaðinn til Elfu, Freys og Heiðbjartar. Hreinn að vélsleðast á hálendinu. Það var allt of langt síðan við vorum í bústaðnum og Freyr var eins og hann hefði verið að uppgötva hitt og þetta upp á nýtt sem hann hafði ekki gert lengi. Fórum í bíltúr í dag í Múlakot og að skoða Seljalandsfoss. Það er varla að maður kannist við sig á þessum slóðum um vetur en fegurðin er öðruvísu. Grýlukertin alveg ótrúleg. Það er um að gera að njóta vetrarins, hann er ekkert á förum.