Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, February 27, 2008

Orkan í birtunni

Það er allt komið á fullt í hversdaglegu starfi á heimilinu. Freyr fór í skólann í gær eftir 3. vikna frí. Hann þóttist kvíðinn en hann lét sig hafa það og kom heim sæll en þreyttur. Nú er lestrarátak hafið og engin miskun. Honum leiðist reyndar Sísí sá sól - Sísí á ís í sól o.sfrv. en hann verður að láta sig hafa þetta kallinn. Það er nóg að stússat hjá mér við hitt og þetta og gengur bara vel. Ég fæ alltaf orku þegar daginn lengir og sérstaklega þegar sólin skín á snjóinn. Nú er að virkja orkuna :-) Skellum okkur á Selfoss á eftir í kveðjupartý hjá Patreki, Ásrún fær að fljóta með þrátt fyrir að vera stelpa en umrætt partý er víst eingöngu ætlað strákum.
Það gengr vel með nýja hemilismeðliminn, dönsku hestastúlkuna. Komin til Íslands að lifa hestadrauminn en til þess að gera það mögulegt lætur hún sig hafa það að sinna heimilisverkum og börnum inn á milli í Odda. Þetta smellpassar allt og er þetta ofsalega fín stelpa, enda prestsdóttir (móðir og faðir) :-) það verður engin svikinn af því.

1 Comments:

  • At 7:24 AM, Anonymous Anonymous said…

    gódar kvedjur ur sólinni á kanarí svakalega heitt en tetta er tad sem madur er ad leita eftir..voda gaman hjá okkur.kveda mamma og pabbi.

     

Post a Comment

<< Home