Myndir

Mér tókst að komast að heiman í dag og heim aftur, skódinn er algjör perla. Ég komst því sem betur fer til að sinna vinnunni á skrifstofunni og víðar. Hins vegar var hringt frá leikskólanum og Ásrún komin með hita, ég sem hélt væri búin með veikindaskammtinn, en hvað um það hún er nokkuð hress. Enn snjóar svo ég veit ekki hvernig fer með ferðir á morgun, það kemur í ljós. Setti inn myndir úr ferðinni á Barnland áðan, vek athygli á albúmið er ekki efst þrátt fyrir að hafa gefið skipun um það. Skelli inni smá grínmynd fyrir helgina.
Kuns og kram


1 Comments:
At 4:15 PM,
Anonymous said…
ÆÆ litla múslan orðin veik..litli prinsin sem var í Sóltúninuí gær var veikur í morgun gubb og hiti kannski hafa þau smitað hvort annð,,hann fær að fljúga með hita eins og Freyr frændi...kveðja úr Sóltúninu
Post a Comment
<< Home