Guðbjörg Arnardóttir

Friday, February 01, 2008

Það lítur út fyrir að við komust


Jæja, ég hef eiginlega ekki haft tíma til að hlakka til ferðarinnar til Dóminíska lýðveldisins eða Dómínó eins og Ásrún hefur stytt nafnið í. En hlaupabólan virðist ekki ætla að stoppa okkur, Ásrún er hitalaus og farin að stríða okkur og bróðir sínum sem er mikið batamerki. Fengum grænt ljós frá heilbrigðisyfirvöldum að þetta yrði allt í góðu. Svo ég er nánast búin að pakka. Það er núna í þessum skrifuðu orðum -20° frost á Hellu, ekki á morgun heldur hinn spáir í Dómínó 31°hita hvað eru 50° á milli vina :-) Jæja, stefni að því að þefa uppi nettenginu og læt vita af mér ef ekki þá knús á línuna. Guð geymi ykkur öll, þar til við bloggumst á ný.

Smá sýnishorn af hlaupabóluprinsessunni.

1 Comments:

  • At 2:38 PM, Anonymous Anonymous said…

    Flott heimasíða og falleg stúlka á myn dinni

     

Post a Comment

<< Home