Guðbjörg Arnardóttir

Monday, February 18, 2008

Komin heim

Jæja þá erum við komin heim úr fríinu. Lentum á Keflavíkurflugvelli um hálf átta á föstudagsmorgun. Þetta var algjör snilld og æðislegt frí. Það gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig. Áður en við fórum fékk Ásrún hlaupabólu og var á tímabili tvísýnt um hvort við færum. Þegar 2 1/2 var eftir var Freyr kominn með hita og hlaupabólu. Ég reiknaði með hita í einn og hálfan dag eins og hjá Ásrúnu og eftir það yrði allt upp á við. En nei, drengurinn fékk bólur á allan líkamann og er ein bóla, alveg þakin. Hann var með 40 stiga hita og ótrúlega slappur. Mér þótti á mörkunum hægt að leggja það á barnið að fara í flug en við kýldum á það samt. Í flugið fór hann í hámarki kláðans og með 40 stiga hita. Reynt var að dæla í hann verkjalyfjum og bera á kláðann en hann var alveg eins og tuska. Þetta var því löng flugferð og erfið en við komumst heim heil á húfi. Hann er auðvitað enn eftir sig og fer ekki í skólann þessa vikuna. En hann stóð sig eins og hetja strákurinn og þetta er eftir á mjög eftirminnilegt. Lánið er hann fékk þetta í lok ferðarinnar og missti ekki nema 2 daga úr stuðinu, sem þó var auðvitað ekki nógu mikið stuð því þetta setti okkur öll úr lagi. En þegar við erum komin heim þá hverfa þessir veikindadagar og allir hinir dagarnir standa upp úr. Á föstudaginn fengum við sendingu frá Danmörku, danska stelpu sem verðu au-pair hjá okkur, sjá hvenig það virkar. Þetta er spennandi, mjög fín stúlka, strax sé að hún er dugleg og ófeimin svo þetta á allt eftir að virka vel. Það þarf þó að læra inn á þetta allt saman. Kveð ykkur í bili, kveðjur úr hversdeginum.

2 Comments:

  • At 12:51 PM, Anonymous Anonymous said…

    Velkomin heim öllsömul leiðinlegt að Freysi hafi veikst en svona er þetta bara .....ef þið komið á Sellaran þá er hérna lítill maður sem væri nú alveg í stuði að fá Oddasystkynin í heimsókn ef frúnin þarf að skreppa í búð.Siðunbjörg frænka

     
  • At 3:39 AM, Anonymous Anonymous said…

    Velkomin heim! Gott hjá ykkur að komast aðeins úr kuldanum og í mannsæmandi veður.

    Vonum að allar flensur séu búnar í bili.

    kv. Sirrý og co.

     

Post a Comment

<< Home