Guðbjörg Arnardóttir

Tuesday, January 15, 2008

Óveður

Það er varla að maður kunni lengur á hlutina þegar það snjóar og veðrið er vitlaust. Nú er allt hvítt og vel það, blæs og hvín. Skrölti á bílnum mínum í morgun nb! af því að eiginmaðurinn hálf skipaði það, bara af því að honum fannst svo spennandi að sjá hvort bíllinn minn hefði það. Ég sá það fljótlega þegar ég var komin á Hellu að ég þyrfti að hafa mig fljótlega tilbaka ellegar skilja bílinn minn eftir á Hellu og fá far hjá Hreini heim. Ég náði í Ásrúnu aftur ef um 1 1/2 klst á leikskólanum og við komumst nokkuð greiðlega að bílskúrnum þar sem bílinn situr fastur. Freyr er væntanlegur heim, akstursnemendum verðu keyrt fyrr heim og á öruggum bílum, líklega björgunarsveitabílum. Segiði svo að það sé ekki gaman að vera til á Íslandi í dag. Mér finnst þetta reyndar voða notalegt en þó ekki fyrr en Freyr verður komin heim, ég veit að Hreinn bjargar sér en þó líklega ekki fyrr en hann hefur náð að koma sér í smá ævintýri. Snjórinn er skemmtilegur en ég er töluvert mikið smá farin að hlakka til eftir 2 1/2 viku og vona að spáin á Dóminíska fyrir morgundaginn verði ekki síðri:

Miðvikudagur
86° F 66° F 30° C 19° C
Skýjað með köflum

2 Comments:

  • At 4:44 AM, Anonymous Anonymous said…

    Oh, ég er svo sammála, mér finnst þetta verðurfar yyyyyndislegt. Vildi að ég byggi fyrir austan núna, það er nú bara snjóföl hérna í bænum miðað við Árnes- og Rangárþing.

     
  • At 4:03 AM, Blogger Gunnur said…

    Ég fæ bara gæsahúð við tilhugsunina að vera á leiðinni heim í þetta veðurfar.
    Ætla að njóta þess að fara í göngutúr á eftir í stafalogni á auðum gangstígum :D

     

Post a Comment

<< Home