Ok, ég kíkti í pakkann
Ég tel mig mjög heiðarlega og breyta oftast rétt, fer eftir leikreglum og fylgi vel fyrirmælum. En í kvöld missti ég stjórn á mér, það er ekkert hræðilegt og hefur ekki með neitt annað en sjónvarp að gera. Ég þurfti ekki að hafa mikið fyrir því og ákvað bara að slá til. Ég veit hvernig Glæpurinn endar. Mér hefur aldrei liðið jafn vel á sunnudagskvöldi eftir þættina fyrr en núna. Ég vissi að næstu tvo sunnudaga kem ég ekki til með að horfa á þættina svo það riðlast hvort eð er allt. En ég er góð í að þegja svo ég segi ekki neinum nema þeim sem vilja hins vegar er ekki mikið mál að komast að leyndarmálinu.
Góða nótt og dreymi ykkur vel.
Í Guðs friði.
Góða nótt og dreymi ykkur vel.
Í Guðs friði.


2 Comments:
At 2:50 PM,
Anonymous said…
Þú ert rosaleg!
At 8:04 AM,
Anonymous said…
Ég veit líka..liggaliggalá..
Post a Comment
<< Home