Guðbjörg Arnardóttir

Monday, January 21, 2008

Kvöldvers

Það skiptast á skin og skúrir. Mikið var fallegt veðrið fyrri partinn í dag. Ég er hrifinn af snjónum, fæ af honum einhver kraft. Finnst allt svo hreint, bjart og fallegt. Hann hægir líka á mannlífinu og það er notalegt í janúar. En ekki endast allt jafn lengi og veit ég að líka fagna fleiri en færri þegar snjóa léttir.
Mér var um daginn sýnt þetta yndislega kvöldvers sem er eftir Friðrik Jónsson og læt það fylgja hér fyrir nóttina.

Kvöldvers

Ég halla höfði mínu
að hjarta Jesú þínu,
þar sofna ég sætt og rótt.
Ég veit þín augu vaka
og vara á mér taka.
Gef mér og öllum góða nótt.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home