Guðbjörg Arnardóttir

Monday, January 07, 2008

Jólin kvödd

Jæja, nýtt ár byrjar bara vel, ég hef nú verið á ágætis næði og rólegheitum á nýju ári. Fékk að sofa út með krökkunum í síðustu viku og gera eiginlega minna en ekki neitt, svo nú er allt að verða hlaðið. Tók niður í dag allt jólaskraut, það er alltaf svolítið sérstök athöfn. Ég geri það með smá trega en um leið kveiki ég á mínum innri augum eins og Davíð St. skáldið mitt orðar það og jólin lýsa áfram. Þegar allt er komið í kassa á ný og upp á hillu er heimilinu létt, það er allt svo hreint og bjart finnst mér. Ég er svo hrifinn af hrynjandi ársins.
Ég uppgötvaði eiginlega tvennt nýlega sem gefur til kynna að ég er að eldast. Hið fyrsta er að ég fékk tvær ævisögur í jólagjöf. Davíð Stefánsson og Bíbí, ég man þegar amma og afa fengu ekkert nema ævisögur í jólagjöf og ég vorkenndi þeim svo og var viss um að þetta væri það síðasta sem ég hefði áhuga á að lesa en ó nei, breyttir tímar. Annað er dálæti mitt á dúkum, þegar Freyr var skírður spurði amma mig hvort ég ætti nógu fallega dúka og ég hváði en þáði um leið dúka að láni. Þeim fjölgar dúkunum hjá mér og finnst mér rosalega gaman að hafa fallega dúka á borðstofuborðinu og breyta reglulega um. Já, hrynjandi lífsins eða hvað :-)
Jæja, Davíð minn bíður á náttborðinu og er komin að kaflanum þar sem skáldið fer að fæðast, hlakka til.

2 Comments:

  • At 11:10 AM, Anonymous Anonymous said…

    Hlakka til að sjá þig á fimmtudag..
    Kv.
    Sigga

     
  • At 9:47 AM, Anonymous Anonymous said…

    Já þú ert orðin eldgömul...djók ;-)

     

Post a Comment

<< Home