Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, January 30, 2008

Hlaupabóla

Jæja, það er ekki um að villast að Ásrún er komin með hlaupabólu og hún virðist ætla að setjast að á nokkrum stöðum. Stelpan er nokkuð brött á meðan hitastillandi lyf virka á milli verður hún hálf aum. Önnur spurning sem er að brjóstast um í okkur er hvort Freyr hafi fengið hlaupabólu, þegar hann var um 2 ára fékk hann ca 3 bólur en var það nóg eða ekki?
Ég reyni að telja mig ekki hjátrúafulla. En sl. vor þegar við fórum fjölskyldan í helgarferð til Danmerkur þurfti ég að koma börnunum til læknis deginum áður, bæði með ,,strepokokka'' og Freyr að auki með eyrnabólu og var Freyr þá að fá sýklalyf í þriðja sinn á ævinni. Nú er það ferðin til Dóminíska sem stendur fyrir dyrum. Hvað er málið? Er það tilhlökkun barnanna sem brýst svona út? Jæja, hvað um það, tökum einn dag í einu og látum þjáningar hans eða gleði nægja. Þetta lemur allt í kjós eins og konan sagði.

1 Comments:

Post a Comment

<< Home