Gleðileg jól og gleðilegt ár
Úff, ég er ekki að standa mig í jólaóskunum til ykkar en það kemur þó fyrir jólalok. Hér er allt það besta að frétta. Búið að vera nóg að gera. Uppgötvaði það á aðfangadag að líkaminn var að gefa eftir, enda seint farið að sofa kvöldin fyrir jól, ekki gott, bæta úr því næst. Hálsbólga gerði hægt en örugglega vart við siger jólin gengu í garð og í guðsþjónustunni á 2. í jólum var röddin ekki upp á sitt besta og tónið eftir því :-( Hálf raddlaus sinnti ég hinum og þessum störfum milli jóla og nýárs. Mikið gleðileg athöfn var í gær er ég gaf saman mágkonu mína, Þrúði, systir hans Hreins og Duffa. Frábærlega gaman og geggjað veður, síðan var veisla í húsi við Elliðavatn, alveg frábært útsýni og staðsetning. Í dag var veðrið ekki geggjað nema í neikvæðri merkingu en hingað barðist samt fólk með barnið sitt sem borið var til skírnar. Síðan var haldið upp á 80 ára afmæli Hellu áðan í íþróttahúsinu. Á morgun er það guðsþjónusta kl. 16 síðan brunum við í mat til mömmu. Úff jólafrí hvað?
Hafið það gott yfir áramótin krúttin mín, farið varlega og gangið hægt um gleðinnar dyr ef það verður yfir höfuð veður til að gera nokkuð nema sitja inni og ,,hygge sig'' yfir fréttaannálum og skaupinu. Það er líka alveg nóg til að eiga fullkomið gamlárskvöld að mínu mati.