Betra að borða en skreyta
Ofninn gekk vel um helgina og slett í nokkrar sortir, þannig að þau sem kíkja í kaffi fá heimabakaðar smákökur. Mér finnst gaman að baka þær og þess vegna geri ég það, ekki af skyldu. Hins vegar nenni ég ekki neinu dúlli, sörur eru rosalega góðar en það er ekki fræðilegur að ég nenni að baka þær. Mínar sortir eru þannig að þær eru hræðrar eða hnoðaðar og bakaðar. Ég ætlaði að vera voða góða mamma að skapa stemningu og baka piparkökur og leyfa börnunum að skreyta, mér fannst það spennandi í gamla daga, að mig minnir alla vega. Hins vegar var ekki nokkur áhugi fyrir hendi hjá mínum nema bara tvær köku skreyttar og borðaðar og Freyr var ekki að draga úr því að honum þótti eiginlega bara gaman að borða þær en ekki skreyta. Ég skreytti líka smá heima en Sigga ég lofa, ég kveiki ekki á aðventuljósunum fyrr á sunnudaginn, eða laugardagskvöld :-) Góðar stundir.




