Guðbjörg Arnardóttir

Friday, October 26, 2007

Ný þýðing Biblíunnar

Hvað segiði stelpur, var nokkur ástæða til að þýða upp á nýtt?
1981
Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmannlegir og styrkir.
Allt sé hjá yður í kærleika gjört.
2007
Vakið, standið stöðug í trúnni, verið hugdjörf og styrk.
Auðsýnið kærleika í öllu sem þið gerið.
(1. Kor 16.13-14)




Hætt að geispa

Jú, jú ég er hætt að geispa. Farin að sinna hinu og þessu enda komin tími til.
Merkilegt, það er fríhelgi framundan. Þá fallast mér samt hendur því ég vil nýta tímann sem best og get vart valið úr því sem ég vildi oft gera þegar ég get það ekki.
Valkvíðinn minn enn og aftur.
Góða helgi.

Thursday, October 18, 2007

Ohhhh geisp!

Það voru engir smá sæludagar sem við mamma áttum í Luxembourg hjá þeim mektarhjónum Kollu og Arnar og krúttunum þeirra. Þetta var í alla staði svo vel heppnað, rosalega gaman að sjá húsið hennar Kollu, það er ómöulegt að vera alltaf að tala við hana og vita ekkert hvernig er umhorfs hjá henni. Nú veit ég það og var áður en við fórum alveg farin að rata um húsið, líka í myrkri :-) Það var saga sem varla þolir dagsbirtu á netinu heheheh! Svo var mikið hlegið, spjallað, smakkað og ,,sjoppað". Frábært, frábært. Þriggja landa sýn eins og mamma orðaði það.
Það er verra að koma sér í verkefni vikunnar þessa dagana, hálf löt ennþá. En það kemur allt ekki satt? Best að fá sér einn kaffibolla og hendast svo í verkefnalistann.

Thursday, October 11, 2007

Bæn

Guð, ljósið þitt lýsir mér á jörðu og á himni. Ljósið þitt upplýsir mig, orðið þitt leitar mín og tekur sér bústað í hjarta mínu. Þannig sendir þú mér anda þinn sem leiðir mig. Vert þú með okkur, svo að við séum með þér í dag og alla tíma. Amen. (Úr Bænabókinni: Leiðsögn á vegi trúarlífsins).

Saturday, October 06, 2007

Laugardagur

Dagurinn byrjaði með Kirkjuskóla á Hellu, fín mæting og hörku stuð. Þegar við komum heim sótti mikil leti á okkur. Til að hrista af okkur slenið ákvaðum við að fylgja heiti dagsins eftir og fara í sundlaugina á Hellu. Nú er komið að matseld og kannski fylgir eitt rauðvínsglas með í kaupæti. Mikið getur verið ótrúlega notalegt að vera heima hjá sér og ekki mikið prógramm í gangi. Vona að helgin fari vel með ykkur. Í næstu viku er planið að fljúga til Lux. Ég hlakka ógurlega til, fæ smá í maginn við tilhugsunina að börnin fari ekki með. Mamma heppin að ég sé að fara með henni, þá þarf hún ekki að sakna mín heheheh! Þó vantar litlu syss til að fullkomna mæðgnaferðina, en hún mætti nú ekki fara þó hún vildi, enda frænka eða frændi á næsta leyti.
Jæja, kveðjur til ykkar elskurnar í haustblíðunni.