Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, September 13, 2007

Prestamartröð

Ég held að allar starfsstéttir fái martraðir tengdar starfinu. Ég man þegar ég var í Fjölbrautaskóla og auðvitað ekstra samviskusöm, þá dreymdi mig stundum á haustin að ég væri orðin smá sein í tíma og þegar ég kom í skólann fann ég ekki stofuna, ég gekk upp og niður stiga í FSu og aldrei fann ég stofuna. Ég skal ekki fullyrða um hversu margir framhaldsskólanemar fái slíka drauma og svitni yfir þeim ? Í nótt fékk ég prestamartröð og þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkur draumur lætur á sér kræla. Ég var að fara að gefa saman hjón og þegar svona korter var í athöfnina uppgötva ég að ræðan hjá mér var óútprentuð en merilega nokk hún var tilbúin í tölvunni. Eftir smá leit finn ég tölvuna mína, þetta er alveg ágæt tölva en hún á það til að vera sein í gang og auðvitað var hún það í þetta sinn. Þegar hún var tilbúin var útlitið á henni breytt og ég ætlaði aldrei að finna ritvinnsluna og þegar ég fann hana þá voru skrárnar ekki í neinu skipulagi svo ég sá ekki fram á að finna ræðuna fyrir athöfnina........ þá vaknaði ég og úff hvað ég var fegin. Ætli mér veit nokkuð af Freyju draumi fyrir svefninn í kvöld?

0 Comments:

Post a Comment

<< Home