Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, September 30, 2007

Abbababb og Vatnaskógur

Skelltum okkur í Hafnarfjarðarleikhúsið í dag fjölskyldan, sáum Abbababb. Rosalega skemmtilegt þó söguþráðurinn hafi ekki verið upp á marga fiska þá standa lögin fyrir sínu og Frey þótti gaman. Uppgötvuðum reyndar í hléi að Ásrún var greinilega komin með háan hita, sagðist vera hrædd og vilja fara í bílinn svo hún og pabbi hennar yfirgáfu herlegheitin.
Ég held í Vatanskóg á morgun og verð fram á seinni part þriðjudags með væntanlgum fermingarbörnum. Hlakka til og verður örugglega gaman.

Wednesday, September 26, 2007

Réttir



Það voru réttir um síðustu helgi. Hefði mátt vera betra veður en hvað um það börnin voru mjög sátt og Freyr tók á öllú við að draga. Hann hins vegar er ekki komin upp á lag með að þekkja kindur nágrana sinna til að verða að veruelga liði en það hlýtur að koma með hverju ári.


Annars er allt gott að frétta úr Odda, haustið segir hressilega til sín og vindar blása af miklum krafti. Á sunnudag var nánast ekki stætt heima við. Jæja, kveðjur til ykkar í bili.

Thursday, September 13, 2007

Prestamartröð

Ég held að allar starfsstéttir fái martraðir tengdar starfinu. Ég man þegar ég var í Fjölbrautaskóla og auðvitað ekstra samviskusöm, þá dreymdi mig stundum á haustin að ég væri orðin smá sein í tíma og þegar ég kom í skólann fann ég ekki stofuna, ég gekk upp og niður stiga í FSu og aldrei fann ég stofuna. Ég skal ekki fullyrða um hversu margir framhaldsskólanemar fái slíka drauma og svitni yfir þeim ? Í nótt fékk ég prestamartröð og þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkur draumur lætur á sér kræla. Ég var að fara að gefa saman hjón og þegar svona korter var í athöfnina uppgötva ég að ræðan hjá mér var óútprentuð en merilega nokk hún var tilbúin í tölvunni. Eftir smá leit finn ég tölvuna mína, þetta er alveg ágæt tölva en hún á það til að vera sein í gang og auðvitað var hún það í þetta sinn. Þegar hún var tilbúin var útlitið á henni breytt og ég ætlaði aldrei að finna ritvinnsluna og þegar ég fann hana þá voru skrárnar ekki í neinu skipulagi svo ég sá ekki fram á að finna ræðuna fyrir athöfnina........ þá vaknaði ég og úff hvað ég var fegin. Ætli mér veit nokkuð af Freyju draumi fyrir svefninn í kvöld?

Monday, September 10, 2007

Rigning

Það er engin smá rigning úti og leiðindaveður. Þetta er eiginlega ekta veður til að liggja heima í leti og reyna að gera sem minnst. Ætla í það núna, vona að það gangi.

Tuesday, September 04, 2007

Af gæjum og guðfræði

Elfa mín þurftir þú alveg að rústa dæminu fyrir mér. Ég sem hélt í alvuru að þessum fallega manni þætti mikið til bloggsins míns koma og var farin að gera mér upp dagdrauma..... Nei, nei bara djók. Annars var ég í Skálholti í gær að drekka í mig guðfræði, alveg frábært. Það er nauðsynlegt að halda fræðunum lifandi og virkum. Ekki veitir af í rokinu og rigningunni.