Guðbjörg Arnardóttir

Friday, August 17, 2007

Töðugjöld

Það eru töðugjöld framundan um helgina, ekki það að við ætlum í heyskap heldur verður húllum hæ í Þykkvabænum og á Hellu. Voða gaman, mamma og pabbi ætla að kíkja og gista, taka þátt í gríninu. Veðurspáin lofar góðu svo þetta lítur vel út.
Fékk æðiskast í eldhúsinu í gær og endurskipulagði, það var æði. Ég er töluvert klikkuð ég veit það en skipulagsfíknin fékk útrás, svo það er komið haust í mig :-) Ekki meira slór og slugs og þó.

1 Comments:

  • At 8:42 AM, Anonymous Anonymous said…

    Þarna þekki ég þig, sykurpúði..
    Kv.
    Sigga

     

Post a Comment

<< Home