Skólinn
Freyr byrjar í skólanum á föstudaginn, ég er komin með innkaupalistann í hendur og hlakka svo til eða kvíði fyrir, veit ekki alveg hvort er. Við ræddum málin í gær og hann er líka kvíðinn, létti heil mikið þegar ég lýsti því yfir hversu hrædd og kvíðinn ég hafi verið þegar ég var að byrja sem prestur. Hann kveið mest fyrir því að vita ekki hvenær hann ætti að vakna, hvenær skólabíllinn kæmi og hvert hann ætti að fara. Ég fullvissaði hann um að mamma og/eða pabbi færu alltaf með honum á fætur og fylgdu honum í skólabílinn og nú fæ ég smá fyrir hjartað við tilhugsunina að senda hann einan í skólann, úff það hlýtur að venjast.
Þetta eru spennandi tímar.
P.S. Ég var alveg búin að gleyma því hvað það getur rignt mikið.
Þetta eru spennandi tímar.
P.S. Ég var alveg búin að gleyma því hvað það getur rignt mikið.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home