Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, August 19, 2007

Kalli á þakinu


Það voru velheppnuð töðugjaldahátíð hér um helgina. Algjörlega himnesk kartöflusúpa í Þykkvabænum á föstudag og ýmislegt húllum hæ á Hellu á laugardeginum og veðrið eins og best verður á kosið. Við biðum nokkuð lengi eftir Kalla á þakinu á laugardag og var hann biðinnar virði, það var voða gaman að honum. Hann reyndi að fá nammi hjá krökkunum en enginn var fús til að gefa það frá sér. Ég lumaði á sleikjó og sendi Frey með hann að sviðinu til að gefa Kalla sem aðvitað þáði hann með þökkum. Þegar atriðið var búið fengu fjöldamargir mynd af sér með Kalla. Við vorum ekki með myndavél og grét minn maður heil mikið vegna þess að fá ekki mynd af sér með Kalla, mikil sorg. Þegar Hreinn kíkti á netið í gærkvöldi var málinu reddað. Komin var myndin af Frey og Kalla á þakinu, svona fær maður stundum óskir sínar uppfylltar án þess að hafa mikið fyrir því.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home